University of Iceland
Beiting notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar sem stjórntækis í íslensku samfélagi
Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á hvernig notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er nýtt sem stjórntæki í íslensku samfélagi. Meginrannsóknarspurningin sneri að því hvernig notendastýrðri persónulegri aðstoð væri beitt sem stjórntæki hjá sveitarfélögum á Íslandi. Rannsóknin er eigindleg og byggir á tvenns konar gögnum; annars vegar fræðilegum heimildum, lögum og samningum og hins vegar einstaklingsviðtölum við starfsmenn sveitarfélaga sem koma að málefnum fatlaðs fólks. Gögn rannsóknarinnar voru skoðuð út frá bók Lesters M. Salamons um stjórntæki stjórnvalda. Rannsóknin sýnir að það hafa komið upp áskoranir við innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar hjá sveitarfélögum á Íslandi. Aftur á móti sýnir hún einnig fram á að það eru kostir við beitingu NPA hjá sveitarfélögum. Helsti kostur NPA samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar var aukning á lífsgæðum notenda þess. Áskoranir sem hafa komið upp eru til að mynda erfiðleikar við að finna starfsfólk auk þess sem það getur reynst notendum flókið að halda utan um starfsmanna- og launamál. Samkvæmt viðmælendum rannsóknarinnar hentar NPA því ekki fyrir alla. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að þörf sé á skýrari verkferlum og ramma af hálfu ríkisins, þannig að samræmis gæti á milli sveitarfélaga.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Venný Hönnudóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/29973
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/29973