Back to results

University of Iceland

Barnaverndarstarf á Íslandi: Hefur þróun barnaverndarlöggjafar haft áhrif á þróun úrræða í barnavernd?

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er fjallað um sögu og þróun íslenskrar barnaverndarlöggjafar auk úrræða í barnavernd á Íslandi. Markmið hennar er að skoða hvort þróun barnaverndarlöggjafar hefur haft áhrif á þróun úrræða í barnavernd. Til að komast að því er farið yfir sögu og þróun barnaverndarlöggjafarinnar frá því áður en heildstæð barnaverndarlög komu fram og til núgildandi barnaverndarlaga nr. 80/2002. Unnið er eftir umfangsmikilli barnaverndarlöggjöf til að veita börnum viðeigandi vernd en hún hefur tekið verulegum breytingum í gegnum tíðina. Vernd barna er í höndum barnaverndaryfirvalda, sem starfa eftir núgildandi barnaverndarlögum, og gerð er grein fyrir því hvernig þau standa hér á landi eftir stöðuga þróun barnaverndarlaganna. Farið er yfir það hvernig úrræði í barnavernd hafa hliðstætt barnaverndarlöggjöfinni þróast og breyst auk þess að fjallað er um hvernig úrræðum í barnavernd er háttað í dag. Um er að ræða stuðningsúrræði sveitarfélaga annars vegar og úrræði ríkisins, eða Barnaverndarstofu, hins vegar. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar gefa til kynna að þróun barnaverndarlöggjafarinnar og þróun úrræða í barnavernd eru nátengdar og hafa haft einhver áhrif hvor á aðra frá upphafi. Oftar en ekki hafa þó barnaverndarúrræði komið til á undan sem síðar hafa verið lögbundin, en ekki öll. Erfitt er á köflum að draga ályktanir um hvort kemur á undan.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Heiðdís Hafþórsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29966
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29966

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiðdís Hafþórsdóttir 1994-. Barnaverndarstarf á Íslandi: Hefur þróun barnaverndarlöggjafar haft áhrif á þróun úrræða í barnavernd?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29966