Abstract
dc:description.abstractÁ síðustu árum hefur japönsk menning vakið heimsathygli, en Japan er heimaland ninja og samúræa, sem margar bíómyndir hafa fjallað um, auk súmó glímu og Godzilla. Einnig hefur japönsk matarmenning lagt undir sig heiminn, en finna má sushi staði í öllum helstu borgum heimsins auk þess sem japanskar teiknimyndir hafa vakið heimsathygli. Við fyrstu umhugsun er Japan ekki endilega það land sem maður tengir við Ísland, því mikil fjarlægð er á milli þessara tveggja eylanda, en ef betur er að gáð er margt hér á landi sem á rætur sínar að rekja til Japan. Í þessari ritgerð verður fjallað um japanska menningu á Íslandi þar sem rakin verður saga hennar á Íslandi, hvenær hún byrjaði að gera vart við sig, hvernig hún þróaðist frá komu til birtingarmynd hennar í dag, auk þess sem snert verður á vinsældum hennar hér á landi. Er ritgerðin mikið til byggð á blaðagreinum og auglýsingum vegna fárra rannsókna á efninu, auk þess sem slíkar heimildir gefa innsýn inn í huga fólks íslendinga á hverjum tíma fyrir sig. Einnig var gerð könnun um þekkingu íslendinga á japanskri menningu og vitund á japanskri menningu á Íslandi. Þar að auki voru tekin viðtöl við Gunnellu Þorgeirsdóttur, yfirmann japönskudeildar Háskóla Íslands, og Þórhall Björgvinsson, deildarstjóra myndasagna hjá Nexus.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kolbrún Arna Björnsdóttir 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/29890
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/29890