Back to results

University of Iceland

Japönsk menning á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Á síðustu árum hefur japönsk menning vakið heimsathygli, en Japan er heimaland ninja og samúræa, sem margar bíómyndir hafa fjallað um, auk súmó glímu og Godzilla. Einnig hefur japönsk matarmenning lagt undir sig heiminn, en finna má sushi staði í öllum helstu borgum heimsins auk þess sem japanskar teiknimyndir hafa vakið heimsathygli. Við fyrstu umhugsun er Japan ekki endilega það land sem maður tengir við Ísland, því mikil fjarlægð er á milli þessara tveggja eylanda, en ef betur er að gáð er margt hér á landi sem á rætur sínar að rekja til Japan. Í þessari ritgerð verður fjallað um japanska menningu á Íslandi þar sem rakin verður saga hennar á Íslandi, hvenær hún byrjaði að gera vart við sig, hvernig hún þróaðist frá komu til birtingarmynd hennar í dag, auk þess sem snert verður á vinsældum hennar hér á landi. Er ritgerðin mikið til byggð á blaðagreinum og auglýsingum vegna fárra rannsókna á efninu, auk þess sem slíkar heimildir gefa innsýn inn í huga fólks íslendinga á hverjum tíma fyrir sig. Einnig var gerð könnun um þekkingu íslendinga á japanskri menningu og vitund á japanskri menningu á Íslandi. Þar að auki voru tekin viðtöl við Gunnellu Þorgeirsdóttur, yfirmann japönskudeildar Háskóla Íslands, og Þórhall Björgvinsson, deildarstjóra myndasagna hjá Nexus.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kolbrún Arna Björnsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29890
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29890

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kolbrún Arna Björnsdóttir 1993-. Japönsk menning á Íslandi. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29890