University of Iceland
„Ég er bara svo sátt í dag að það bætir upp fyrir hringlið á mér áður" Starfsferilsbreytingar á miðjum starfsferli og kenningin um óreiðu á starfsferli
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að öðlast innsýn í upplifun og reynslu fólks sem hafði átt fjölbreytilegan náms- og starfsferil en fundið sinn farveg í starfi eftir að hafa tekið u- beygju á miðjum starfsferli. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við sjö einstaklinga á aldrinum 33-48 ára sem höfðu skipt um starfsvettvang fyrir 3-10 árum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að í heildina litið voru árangursríkar u-beygjur teknar vegna óreiðukenndra þátta svo sem óvæntra atburða og tilviljana. Það sem einkenndi alla viðmælendur rannsóknarinnar var opið og sveigjanlegt viðhorf til náms- og starfsferils sem hafði auðveldað þeim að koma auga á tækifæri og umbreyta tilviljunum í tækifæri á starfsferilsgöngunni. Það var þeim einnig mikilvægt að störf gæfu þeim tilgang, ánægju og gerði þeim kleift að vera trú sínum eigin gildum en það kom sterklega í ljós á nýjum starfsvettvangi. Þrátt fyrir frekar óreiðukenndan náms- og starfsferil allra þátttakenda var ekki að merkja neina eftirsjá heldur litu þeir á sinn feril sem góða reynslu sem nýttist þeim í núverandi starfi. Niðurstöður gætu nýst í umræðunni og rannsóknum um starfsferilsbreytingar fólks á miðjum starfsferli. Einnig er vert að hafa í huga kenninguna um óreiðu á starfsferli þegar nálgast skal ráðþega og hjálpa til við að undirbúa þá fyrir óvæntar breytingar sem gætu haft áhrif á ákvörðunartöku á starfsferli.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Laufey Katrín Hilmarsdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/29784
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/29784