University of Iceland
Börn sem eru sein til máls: Orðaforðaþjálfun barns á þriðja ári
Abstract
dc:description.abstractBörn sem eru sein til máls hafa við tveggja ára aldur slakan orðaforða miðað við jafnaldra og/eða nota ekki tveggja orða setningar. Um 15% barna eru sein til máls og eiga þau á hættu að þróa með sér málþroskaröskun. Einkenni málþroskaröskunar hjá börnum eru erfiðleikar með tungumál sem orsakast ekki af þekktum taugafræðilegum, vitsmunalegum, skynjunar eða tilfinningalegum þáttum. Algengi málþroskaröskunar er um 7% hjá fimm ára börnum en röskun í málþroska getur m.a. valdið félagslegum- og námslegum vanda í framtíðinni. Snemmtæk íhlutun, þar sem barni með frávik í þroska er veitt viðeigandi þjónusta, getur haft jákvæð áhrif á málþroska en ekki er vitað við tveggja ára aldur hvaða börn verða síðar greind með málþroskaröskun. Markmið þessarar rannsóknar var að veita barni á þriðja ári, sem seint er til máls, orðaforðaþjálfun. Þjálfunin byggðist á fyrirlögn fyrir fram ákveðinna markorða sem þjálfuð voru með fjölbreytni og ákefð. Einnig voru valin samanburðarorð sem ekki voru þjálfuð. Þjálfunin fór fram tvisvar í viku og voru meðferðartímar 14 talsins. Niðurstöður leiddu í ljós að almennur orðaforði barnsins, sem mældur var með staðlaða málþroskaprófinu Orðaskil, jókst yfir meðferðartímabilið umfram það sem vænta mátti vegna almenns þroska. Prófanir á markorðum og samanburðarorðum voru ekki markverðar. Aðrar mælingar sýndu þó að barnið notaði markorðin meira en samanburðarorðin, bæði heima og í þjálfunartímum, og að notkun á orðunum jókst eftir því sem leið á meðferðina. Íhlutunin hafði almennt jákvæð áhrif á þá þætti málþroskans sem mældir voru með málsýnum, þótt ekki hafi verið hægt að slá því föstu að þær framfarir hafi komið til vegna íhlutunarinnar. Sú aukning sem varð á orðaforða barnsins hélst mánuði eftir að íhlutun lauk. Mikilvægt er að bera kennsl á seinkun í málþroska eins snemma og kostur er. Þegar búið er að bera kennsl á barn sem seint er til máls þarf í framhaldi að veita því viðeigandi örvun eða íhlutun, en þessi rannsókn bendir til að slík meðferð geti haft góð áhrif. Sambærileg rannsókn hefur ekki verið gerð á Íslandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Marta Eydal 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/29772
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/29772