Back to results

University of Iceland

Árstímabundin virkni léttra gróðurþaka á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Gróðurþök hafa verið sett upp í vaxandi mæli víða í borgum í Evrópu sem hluti af grænbláum regnvatnslausnum. Markmið þessarar rannsóknar var að greina vatnafræðilega virkni mismunandi útfærslna af léttum gróðuþökum miðað við íslenskar aðstæður. Afrennsli var mælt af fjórum grænum þökum og einu samanburðarþaki með bárujárni yfir 8 mánuða skeið, frá maí til desember. Samhliða voru framkvæmdar mælingar á snjóþekju, rigningu og öðrum veðurþáttum. Meðalvatnsheldni þakanna mældist 47 til 61% miðað við bárujárn (maí til desember) í samræmi við erlendar rannsóknir í köldu loftslagi. Árstíðamunur á vatnsheldni mældist aðeins meiri í þessari rannsókn í samanburði við sambærilega skoska rannsókn, og sér í lagi var virknin lægri á veturna á Íslandi. Marktæk seinkun á massamiðju afrennslis og lækkun afrennslistoppa mældist í öllum gróðurþökunum en varlegt er að treysta á að gróðurþök minnki álag á frárennslikerfin þegar álagið er mest, þ.e.a.s. þegar úrkomuatburðir eru mjög stórir og tíðir. Marktæk vensl milli vatnsheldni fundust með línulegri aðfallsgreiningu við fjóra veðurþætti (lofthitastig, uppsafnaða úrkomu, úrkomu 14 daga fyrir atburð og vindhraða 7 daga fyrir atburð). Bæði grasþökin gáfu til kynna aðeins hærri vatnsheldni en úthaginn á móti báru þau vott um þurrk, litu illa út sér í lagi fyrri hluta sumars. Þak með einu lagi af 3 cm þykku grastorfi á hvolfi er ekki nægilegt til þola nokkurra vikna þurrkatímabil í Reykjavík. Þök með úthaga gáfu til kynna góða vatnafræðilega virkni, litu vel út, og þurftu lítið viðhald.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Halla Einarsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29501
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29501

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Halla Einarsdóttir 1983-. Árstímabundin virkni léttra gróðurþaka á Íslandi. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29501