Back to results

University of Iceland

Skæruliðamarkaðssetning: Þau einkenni sem spá mest fyrir um kaup- og umtalsáform neytenda

Abstract

dc:description.abstract

Í skæruliðamarkaðssetningu er notast við óhefðbundnar aðferðir við markaðssetningu á vörum eða þjónustu. Vinsældir hennar hafa aukist vegna þess að hún er talin ná betur til neytenda, í gegnum allt auglýsingaflóðið sem á sér stað, heldur en hefðbundin markaðssetning. Aðferðirnar eru meðal annars frumlegar, óvæntar og eftirtektarverðar. Þær vekja upp tilfinningar, forvitni og undrun og fá neytendur oft til að taka þátt. Skæruliðamarkaðssetning er talin auka skynjað virði neytenda sem getur leitt til frekari áforma um kaup og umtal. Þess vegna er vert að vita hvaða einkenni hennar eru árangursríkust og spá mest fyrir um slík áform. Markmiðið með þessari rannsókn var að svara rannsóknarspurningunni: Hvaða einkenni skæruliðamarkaðssetningar spá mest fyrir um kaup- og umtalsáform neytenda? Stuðst var við megindlega rannsóknaraðferð og voru mælitækin tvö, könnun 1 og könnun 2. Könnun 1 sneri að vali um auglýsingar fyrir rannsóknina og könnun 2 sneri að mælingu á kaup- og umtalsáformum neytenda út frá hverri auglýsingu eða einkenni. Í báðum könnunum var notast við hentugleikaúrtök þar sem kannanirnar voru lagðar fyrir á Facebook. 49 einstaklingar tóku þátt í könnun 1 og alls bárust 365 nothæf svör í könnun 2. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að húmor spáði mest fyrir um kaup- og umtalsáform neytenda. Tilfinningaörvun var næst árangursríkasta einkennið. Einkennið undrun var einnig frekar líklegt til að fá neytendur til umtalsáforma. Eftir því sem neytendur voru minna menntaðir því líklegri voru þeir til kaup- og umtalsáforma þegar auglýsing einkenndist af tilfinningaörvun. Auk þess voru karlar líklegri til bæði kaup- og umtalsáforma þegar kom að tilfinningaörvun. Niðurstöður leiddu einnig í ljós að eftir því sem neytendur voru yngri því líklegri voru þeir til kaup- og umtalsáforma þegar auglýsing einkenndist af húmor, tilfinningaörvun eða undrun. Þessar niðurstöður varpa þannig ljósi á þau einkenni sem eru ákjósanlegust og geta skilað mestum árangri þegar fyrirtæki kjósa að nota skæruliðamarkaðssetningu í markaðsstarfi sínu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóna Þórarinsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29257
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29257

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóna Þórarinsdóttir 1992-. Skæruliðamarkaðssetning: Þau einkenni sem spá mest fyrir um kaup- og umtalsáform neytenda. 2017. http://hdl.handle.net/1946/29257