Abstract
dc:description.abstractÖryggisbragur felur í sér sameiginlega upplifun starfsmanna á málefnum öryggis á vinnustað svo sem verkferlum, reglum og starfsaðferðum. Spurningalistinn NOSACQ-50 er búinn til af samnorrænni nefnd um vinnuöryggismál. Hann samanstendur af fimmtíu staðhæfingum sem ætlað er að leggja mælistiku á öryggisbrag hjá Landsneti hf. sem sér um flutning á raforku og stjórnun raforkukerfisins á Íslandi. Listinn var lagður fyrir alla fastráðna starfsmenn. Niðurstöðunum er ætlað að gefa til kynna veikleika og styrkleika öryggisbrags innan sjö þátta. Helstu niðurstöður eru þær að öryggisbragur innan Landsnets er nokkuð sterkt mótaður. Það sýnir að sú vinna sem lagt hefur verið í undanfarin ár hefur skilað sér í því að starfsfólk er meðvitað um mikilvægi öryggis á vinnustað. Helstu styrkleikar eru það traust sem starfsmenn bera til núverandi öryggiskerfis og hjá Landsneti hf. reynist það vera mikið þvert á deildir og stöðu. Konur meta stöðu öryggisbrags sterkari en kalrar. Stjórnendur meta í öllum tilvikum og öllum þáttum öryggisbrag sterkari en almennir starfsmenn. Niðurstöður gefa til kynna að helsti veikleikinn liggi í mun lægri einkunn fyrir öryggisbrag frá þeim starfsmönnum sem starfa utan skrifstofu en þeim sem starfa innan skrifstofuumhverfis. Þessi munur snýr helst að réttsýni stjórnenda í öryggismálum og forgangsröðun starfsmanna í öryggismálum og vitneskju um hættur. Lykilhugtök: Öryggisbragur, Vinnustaðamenning, Öryggismenning, Landsnet, Nosacq-50.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hilmir Steinþórsson 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/29030
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/29030