Back to results

University of Iceland

Meðferð vímuefnafíknar meðal refsifanga: Hlutverk hjúkrunar

Abstract

dc:description.abstract

Í kjölfar aukningar í neyslu vímuefna sem og hertum viðurlögum við fíkniefnabrotum hefur einstaklingum sem hljóta dóma fjölgað. Gera má ráð fyrir að um helmingur fanga uppfylli greiningarskilmerki um vímuefnafíkn og misnotkun, en auk fíknivanda eiga margir refsifangar við ýmis önnur heilsufarsleg vandamál að stríða. Tíðni sjúkdóma tengdum vímuefnaneyslu eru mun hærri meðal refsifanga en hjá almenningi. Árangursrík meðferð við vímuefnafíkn í fangelsum gæti bætt lífsskilyrði og almenna heilsu refsifanga. Öryggi annarra í samfélaginu yrði einnig bætt þar sem afbrotum tengdum neyslu á ávana- og vímuefnum myndi fækka. Tilgangur verkefnisins var að afla þekkingar á meðferðarþörfum refsifanga og hvernig hjúkrunarfræðingar geta mætt þeim. Unnið var út frá rannsóknarspurningunni: „ Hvað geta hjúkrunarfræðingar gert til að auka líka á meðferðarheldni fanga í lok afplánunar“. Leitað var í gagnasöfnunum Pub Med, Cinahl og Scopus. Þau leitarorð sem notast var við voru: fangelsi, fangar, vímuefnamisnotkun og vímuefnameðferð. Helstu niðurstöður voru þær að þrátt fyrir hátt hlutfall vímuefnafíknar meðal refsifanga fá fæstir þeirra viðunandi fíknimeðferð innan fangelsisins. Hjúkrunarfræðingar gætu á grundvelli þekkingar sinnar og menntunar boðið föngum upp á viðunandi meðferðarúrræði og þannig freistað þess að rjúfa vítahringinn milli vímuefnaneyslu og glæpa.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Arndís Vilhjálmsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/2885
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/2885

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arndís Vilhjálmsdóttir 1982-. Meðferð vímuefnafíknar meðal refsifanga: Hlutverk hjúkrunar. 2009. http://hdl.handle.net/1946/2885