Back to results

University of Iceland

Þróun í menntun og störfum þroskaþjálfa : og staðan í dag

Abstract

dc:description.abstract

Ágrip Í upphafi þessa árs var kynnt skýrsla vistheimilanefndar um Kópavogshæli. Það er óhætt að segja að lýsingar á aðstæðum fólks sem þar bjó hafi vakið óhug og reiði meðal almennings. Það sama má segja um sumt af því er fram kemur í lífssögum og viðtölum sem tekin hafa verið við fatlað fólk í gegnum tíðina. Við þurfum að þekkja söguna og þá erfiðu baráttu og aðstæður sem að fatlað fólk hefur lifað við. Mikil söguleg þróun hefur átt sér stað í málefnum fatlaðs fólks, sem hefur orðið til þess að lögum hefur verið breytt og þjónusta bætt. Í verkefni þessu er sjónum beint að þróun í málefnum fatlaðs fólks frá árinu 1936 þegar fyrstu lög voru sett er vörðuðu þennan málaflokk. Jafnframt verður horft til þeirrar þróunar sem orðið hefur á störfum þroskaþjálfa í áranna rás. Segja má að ein mikilvægasta breytingin sem hefur átt sér stað á störfum þroskaþjálfa frá því að Gæslusystraskóli Íslands var stofnaður, séu þau hlutverkaskipti sem orðið hafa. Hlutverk þeirra hefur þróast frá gæslu- og umönnunarstörfum yfir í réttindabaráttu, réttindagæslu og að styðja fatlað fólk til valdeflandi þátttöku í eigin lífi. Í upphafi voru störf þroskaþjálfa bundin við stofnanir en hafa með tímanum þróast til fjölbreyttra starfa innan búsetuþjónustunnar, í skólakerfinu og í almennri þjónustu fyrir fatlað fólk víðar í samfélaginu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elfa Björk Kristjánsdóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28476
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28476

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elfa Björk Kristjánsdóttir 1978-. Þróun í menntun og störfum þroskaþjálfa : og staðan í dag. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28476