University of Iceland
Öryggi barna í innkaupakerrum: Áhrifarík inngrip til að forðast slys
Abstract
dc:description.abstractÖryggi barna ætti að skipta foreldra miklu máli. Því getur fylgt hætta að börnum sé leyft að standa eða sitjae í innkaupakerrum þar sem vörur eiga að vera. Árlega slasast um 100 börn á Íslandi við að detta úr innkaupakerrum. Markmið þessarar rannsóknar var að athuga hvort hægt væri að hafa áhfrif á þá hegðun að foreldrar settu börn sín ofan í innkaupakerrur með því að koma fyrir spjaldi með mynd í innkaupakerrum fjögurra verslana á höfuðborgarsvæðinu. Þrír matsmenn töldu tíðni markhegðunar og var samræmi milli þeirra 0,99. Margfalt grunnskeiðssnið með fráhvarfi var notað til að meta áhrif íhlutunnar í verslununum fjórum. Helstu niðurstöður voru að með spjaldinu var hægt að hafa mikil áhrif á það hvort foreldrar leyfðu börnum sínum að sitja í innkaupakerrum og minnka þar með þau slys sem af því geta hlotist. Ef barn er sett í þann hluta innkaupakerru sem ætlaður er fyrir vörur eykst áhætta á slysum vegan falls úr innkaupakerrunni. Meiðslin sem geta hlotist af falli úr innkaupakerru eru sambærileg meiðslum sem fullvaxinn karlmaður getur orðið fyrir við fall af bílskúrsþaki (Storgaard, 2005a). Eiríksson og Sigurðardóttir (óútgefið) sýndu fram á að inngrip byggt á sjónrænu áreiti gæti minnkað líkur á því að börn væru sett ofan í innkaupakerrur. Frá framkvæmd upprunalegu rannsóknarinnar árið 2010 hafa stærri rannsóknir verið framkvæmdar með það markmið að mæla langtíma áhrif upprunalega inngripsins og nýs en svipaðs inngrips; kortleggja hversu algeng hegðunin er, auk þess að bera kennsl á virka þátt inngripsins. Niðurstöður hafa sýnt að virkni upprunalega inngripsins hélst enn eftir 1, 2 og 3 ár. Rannsóknirnar sýndu einnig að hegðunin er algeng og þá sérstaklega í lágvöruverðs verslunum. Niðurstöður sýndu einnig að notkun táknmyndar (pictogram) í stað ljósmyndar var næstum jafn áhrifaríkt. Samsett inngrip (texti og mynd) virkaði betur en inngrip með mynd eða táknmynd. Texta inngrip hafði næstum jafn mikil áhrif og samsett inngrip. Kerfisbundin endurtekt rannsóknarinnar í öðrum samfélögum er þó nauðsynleg áður en hægt er að mæla með inngripum á stærri grundvelli.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Árni Þór Eiríksson 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28297
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28297