University of Iceland
Ignimbrítið í Hólafjalli og tengdar myndanir - Rakning myndunarsögu gjóskubergs í Fannardal í Norðfirði
Abstract
dc:description.abstractInn af Norðfirði ganga þrír dalir, talið að norðan er það Fannardalur, Seldalur og Oddsdalur. Við gerð nýrra Norðfjarðarganga komu í ljós gjóskubergsmyndanir sem líktust ignimbríti (e. ignimbrite). Hlíðar Hólafjalls í Fannardal geyma slíkar gjóskubergsmyndanir grænleitar að lit og þær eru viðfangsefni þessarar rannsóknar. Markmið rannsóknarinnar er helst að rekja myndunarsögu berglaganna. Myndununum var skipt upp í þrjú snið: lag 1, lag 2 og lag 3. Lag 2 liggur ofan á lagi 1 en um 4 m hraunlag er að milli laga 2 og 3. Bæði efri og neðri lagmót lags 3 fundust auðveldlega, sem og neðri lagmót lags 1 og efri lagmót lags 2 en engin fundust þar á milli og þeim var þá lýst sem einni heild. Grunnmassa laganna var lýst með tilliti til litar og grófleika á hverjum stað sem breytinga gætti. Mæld var lengd og hæð stærstu bergbrota og vikurmola og dreifing þeirra skráð. Lag 1 inniheldur bergbrot í hnullungastærð og lag 2 er ríkt af vikri sem er greinilega öfugt lóðgreindur. Í lagi 3 eru bæði bergbrot og vikurkorn öfugt lóðgreind og hafa minni dreifingu en í lagi 2. Helstu niðurstöður eru að gjóskubergslögin eru 10-12 milljón ára gömul og eiga uppruna sinn líklegast að rekja til Reyðarfjarðareldstöðvar. Talið er með talsverðri vissu að lag 1 sé lag-breksía og sé neðsti hluti lags 2 sem er ignimbrít. Talið er svo að lag 3 sé hluti af lahar-myndun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Iðunn Kara Valdimarsdóttir 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28195
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28195