University of Iceland
Þarfir foreldra barna með flóknar og tæknilegar þarfir sem búa heima: Fræðilegt yfirlit
Abstract
dc:description.abstractBakgrunnur: Með aukinni tækni og framþróun í læknisfræði eru sífellt fleiri börn sem lifa af alvarleg veikindi og kvilla. Umönnun barna með fjölþætt heilsufarsvandamál hefur með árunum verið að færast sífellt meira af sjúkrahúsum og inn á heimili barnsins þar sem þeim er sinnt af fjölskyldu sinni ásamt fagfólki. Með aðstoð tækninnar hefur þessum börnum verið gert mögulegt að búa heima hjá sér þrátt fyrir lífsógnandi ástand. Tilgangur: Að skoða þarfir foreldra sem eiga börn sem þarfnast flókinnar og tæknilegrar umönnunar heima og hvaða stuðningsúrræði eru í boði fyrir þá. Aðferð: Heimilda var aflað úr rafrænum gagnagrunnum PubMed, Cinahl og Scopus ásamt ScienceDirect og Google Scholar. Notast var við fyrirfram ákveðin leitarorð og inntökuskilyrði. Leitað var að ritrýndum fræðigreinum sem skrifaðar voru eftir árið 2001 og fjölluðu um þarfir foreldra barna yngri en 18 ára með flóknar eða tæknilegar þarfir sem búa heima. Niðurstöður: 12 greinar stóðust leitarskilyrði. Niðurstöður leiddu í ljós að helstu þarfir foreldra barna með flóknar þarfir eru; andlegar, félagslegar, fjárhagslegar og líkamlegar þarfir, þörf fyrir upplýsingar og kennslu, þörf fyrir einkalíf og þörf fyrir sjálfseflingu en allt þetta hafði áhrif á lífsgæði þeirra. Helstu stuðningsúrræði þessara foreldra eru heimahjúkrun, stuðningshópar og hvíldarinnlagnir. Umræða: Foreldrar sem eiga tækniháð börn og annast þau heima eru með fjölþættar þarfir sem hafa áhrif á lífsgæði þeirra. Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingar geri sér grein fyrir þörfum þessara foreldra í þeim tilgangi að mæta þörfunum eins og best verður á kosið og þannig stuðla að bættum lífsgæðum bæði fyrir barnið og fjölskyldu þess í heild sinni. Lykilorð: Flóknar og tæknilegar þarfir, þarfir foreldra, Þarfapýramídi Maslow, stuðningsúrræði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Anný Mjöll Sigurðardóttir 1992-
- Lilja Björk Bjarnadóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/27710
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/27710