University of Iceland
Viðskiptaáætlun fyrir Reykjavik Pop Museum. Upplifun í hjarta Reykjavíkur
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar ritgerðar er tvíþætt; annars vegar að kanna fýsileika tónlistarsafnsins, Reykjavik Pop Museum, með gerð viðskiptaáætlunar fyrir safnið og safnbúð þess og hins vegar greiningar á því hvernig nýta megi kenningar og aðferðir upplifunarhagkerfisins við hönnun og rekstur safnsins. Í upplifunarhagkerfinu er lögð áhersla á að hafa skýrt þema sem skín í gegn í allri upplifuninni. Markaðs- og samkeppnisgreining sýndi að markhópur safnsins voru erlendir ferðamenn og þá sérstaklega fólk yngra en 45 ára með áhuga á tónlist. Gert er ráð fyrir 100 þús. gestum á fyrsta ári og 150 þús. á fimmta ári m.v. söluspá. Aðgangseyrir verður 2.500 kr. Áætlaður stofnkostnaður safns er 181.400 þús. kr. og verður verkefnið fjármagnað alfarið með eigin fé á þróunartíma sem er tvö ár. Sjóðstreymi verður jákvætt á öðru ári og fjárfestingin borgar sig til baka á sjötta ári m.v. 20% ávöxtunarkröfu en innri vextir verkefnisins eru 32% yfir 10 ára tímabil. Lítill sveigjanleiki er í verðlagningu eða væntri aðsókn og má safnið aðeins lækka aðgangseyri um 10% og aðsókn dragast saman um 10% til að 20% ávöxtunarkröfu verði mætt. Að þessu gefnu er mælt með því að ráðist sé í verkefnið. Við rekstur safnsins verður notast við verkferli sem mælir upplifun gesta og mælir hvernig sú upplifun hefur áhrif á rekstrarmælikvarða.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elvar Þór Hjörleifsson 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/27688
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/27688