Abstract
dc:description.abstractHeimskreppa gengur nú yfir og Ísland hefur ekki farið varhluta af því. Með falli bankanna í október 2008 hefur fylgt atvinnuleysi, lágt gengi krónunnar, háir vextir og miklar takmarkanir á aðgangi að fjármagni. Í þessari rannsókn er staða ferðaþjónustunnar skoðuð. Ferðaþjónustan hefur vaxið hröðum skrefum undanfarin ár og fyrirtæki innan hennar hafa fjárfest töluvert í takt við aukna eftirspurn. Markmið þessarar ritgerðar er að draga upp mynd af því sem hefur verið að gerast í ferðaþjónustunni hér á landi undanfarin ár og hvar ferðaþjónustan standi nú þegar kreppan ríður yfir. Einnig er hlutverk stjórnvalda í hinu alþjóðlega umhverfi skoðað. Tekin voru opin viðtöl við valda einstaklinga úr ferðaþjónustunni. Einnig var gerð spurningakönnun meðal fyrirtækja í ferðaþjónustu á internetinu. Af niðurstöðum má ráða að ferðaþjónustan á Íslandi standi þokkalega í heild. Þau fyrirtæki sem hafa verið að fjárfesta undanfarin ár og skulda mikið standa verst, sérstaklega þau sem skulda í erlendum gjaldeyri. Búist er við að menntuðu starfsfólki í ferðaþjónustu muni fjölga með auknu atvinnuleysi. Bókanir hjá ferðaþjónustufyrirtækjum voru svipaðar í mars 2009 og árið áður en búist er við svipuðum fjölda ferðamanna og undanfarið ár. Ljóst er að mikill samdráttur er í ferðum Íslendinga erlendis og margir munu því ferðast innanlands í staðinn. Mikil óvissa er í heiminum vegna núverandi kreppu og kemur það nokkuð greinilega fram hjá viðmælendum og í spurningakönnun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Einar Gíslason 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/2767
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/2767