Back to results

University of Iceland

Staða ferðaþjónustunnar á Íslandi í kreppu

Abstract

dc:description.abstract

Heimskreppa gengur nú yfir og Ísland hefur ekki farið varhluta af því. Með falli bankanna í október 2008 hefur fylgt atvinnuleysi, lágt gengi krónunnar, háir vextir og miklar takmarkanir á aðgangi að fjármagni. Í þessari rannsókn er staða ferðaþjónustunnar skoðuð. Ferðaþjónustan hefur vaxið hröðum skrefum undanfarin ár og fyrirtæki innan hennar hafa fjárfest töluvert í takt við aukna eftirspurn. Markmið þessarar ritgerðar er að draga upp mynd af því sem hefur verið að gerast í ferðaþjónustunni hér á landi undanfarin ár og hvar ferðaþjónustan standi nú þegar kreppan ríður yfir. Einnig er hlutverk stjórnvalda í hinu alþjóðlega umhverfi skoðað. Tekin voru opin viðtöl við valda einstaklinga úr ferðaþjónustunni. Einnig var gerð spurningakönnun meðal fyrirtækja í ferðaþjónustu á internetinu. Af niðurstöðum má ráða að ferðaþjónustan á Íslandi standi þokkalega í heild. Þau fyrirtæki sem hafa verið að fjárfesta undanfarin ár og skulda mikið standa verst, sérstaklega þau sem skulda í erlendum gjaldeyri. Búist er við að menntuðu starfsfólki í ferðaþjónustu muni fjölga með auknu atvinnuleysi. Bókanir hjá ferðaþjónustufyrirtækjum voru svipaðar í mars 2009 og árið áður en búist er við svipuðum fjölda ferðamanna og undanfarið ár. Ljóst er að mikill samdráttur er í ferðum Íslendinga erlendis og margir munu því ferðast innanlands í staðinn. Mikil óvissa er í heiminum vegna núverandi kreppu og kemur það nokkuð greinilega fram hjá viðmælendum og í spurningakönnun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Einar Gíslason 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/2767
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/2767

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Einar Gíslason 1982-. Staða ferðaþjónustunnar á Íslandi í kreppu. 2009. http://hdl.handle.net/1946/2767