{"id":{"repo_id":"u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/27566"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/u-iceland/oai:skemman.is:1946/27566","repository":{"repo_id":"u-iceland","name":"University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Kaupákvörðunarstílar hunda- og kattaeigenda við val á gæludýrafóðri","abstract":"Kaupákvörðunarstílar hjálpa til við að skilja kauphegðun markaðar og geta verið mismunandi eftir löndum, menningarheimum og vöruflokkum. Þekking á kaupákvörðunarstílum er mikilvægt hjálpartæki fyrir markaðsfólk til að miða markaðsaðgerðir betur að þeim markhópum sem búa yfir sömu kaupákvörðunarstílum. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna kaupákvörðunarstíla hunda- og kattaeigenda á gæludýrafóðri. Einnig var samband og tengsl eigendanna við gæludýrin könnuð. Rannsóknin var megindleg og var spurningalisti hannaður að mestu út frá mælitækjunum CSI og CDMS sem notuð hafa verið í fyrri rannsóknum á kaupákvörðunarstílum. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 1.295 hunda- og kattaeigendur. Hundaeigendur voru í talsverðum meirihluta eða tæp 70% þátttakenda. Niðurstöður þáttagreiningar kallaði fram fimm þátta lausn sem hægt var að nota til að lýsa kaupákvörðunarstílum hunda- og kattaeigenda. Þættirnir voru: Áhersla á gæði, áhersla á verð, ringlun vegna valkosta, áhersla á vörumerki og fjölbreytni og nýjungar. Fyrstu þrír þættirnir flokkast til nytjahyggjustíla og hinir tveir til nautnahyggjustíla. Hunda- og kattaeigendur virtust almennt leggja áherslu á gæði fóðurs og voru ekki mikið fyrir nýjungar eða fjölbreytni hvað varðar fóður fyrir dýrin sín. Hundaeigendur virtust leggja meiri áherslu á gæði, en kattaeigendur virtust leggja meiri áherslu á fjölbreytni og nýjungar á gæludýrafóðri. Hundaeigendur virtust hafa sterkari tengsl við hundana sína heldur en kattaeigendur við kettina sína. Eigendur sem eru barnlausir hafa sterkari tengsl við dýrin sín heldur en þeir eigendur sem eiga bæði börn og gæludýr.","abstract_html":"Kaupákvörðunarstílar hjálpa til við að skilja kauphegðun markaðar og geta verið mismunandi eftir löndum, menningarheimum og vöruflokkum. Þekking á kaupákvörðunarstílum er mikilvægt hjálpartæki fyrir markaðsfólk til að miða markaðsaðgerðir betur að þeim markhópum sem búa yfir sömu kaupákvörðunarstílum. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna kaupákvörðunarstíla hunda- og kattaeigenda á gæludýrafóðri. Einnig var samband og tengsl eigendanna við gæludýrin könnuð. Rannsóknin var megindleg og var spurningalisti hannaður að mestu út frá mælitækjunum CSI og CDMS sem notuð hafa verið í fyrri rannsóknum á kaupákvörðunarstílum. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 1.295 hunda- og kattaeigendur. Hundaeigendur voru í talsverðum meirihluta eða tæp 70% þátttakenda. Niðurstöður þáttagreiningar kallaði fram fimm þátta lausn sem hægt var að nota til að lýsa kaupákvörðunarstílum hunda- og kattaeigenda. Þættirnir voru: Áhersla á gæði, áhersla á verð, ringlun vegna valkosta, áhersla á vörumerki og fjölbreytni og nýjungar. Fyrstu þrír þættirnir flokkast til nytjahyggjustíla og hinir tveir til nautnahyggjustíla. Hunda- og kattaeigendur virtust almennt leggja áherslu á gæði fóðurs og voru ekki mikið fyrir nýjungar eða fjölbreytni hvað varðar fóður fyrir dýrin sín. Hundaeigendur virtust leggja meiri áherslu á gæði, en kattaeigendur virtust leggja meiri áherslu á fjölbreytni og nýjungar á gæludýrafóðri. Hundaeigendur virtust hafa sterkari tengsl við hundana sína heldur en kattaeigendur við kettina sína. Eigendur sem eru barnlausir hafa sterkari tengsl við dýrin sín heldur en þeir eigendur sem eiga bæði börn og gæludýr.","abstract_has_math":false,"creators":["Berglind María Hlín Waagfjörð 1990-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2017,"date_issued":"2017-05-12","date_published":"2017-05-12","updated_at":"2026-07-27T21:39:44Z","subjects":["Viðskiptafræði","Kauphegðun","Markaðsfræði","Gæludýrafóður"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/27566","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Berglind María Hlín Waagfjörð 1990-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2017-05-12T13:40:14Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2017-05-12T13:40:14Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2017-05-12"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Viðskiptafræði","Kauphegðun","Markaðsfræði","Gæludýrafóður"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/27566"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Kaupákvörðunarstílar hjálpa til við að skilja kauphegðun markaðar og geta verið mismunandi eftir löndum, menningarheimum og vöruflokkum. Þekking á kaupákvörðunarstílum er mikilvægt hjálpartæki fyrir markaðsfólk til að miða markaðsaðgerðir betur að þeim markhópum sem búa yfir sömu kaupákvörðunarstílum. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna kaupákvörðunarstíla hunda- og kattaeigenda á gæludýrafóðri. Einnig var samband og tengsl eigendanna við gæludýrin könnuð. Rannsóknin var megindleg og var spurningalisti hannaður að mestu út frá mælitækjunum CSI og CDMS sem notuð hafa verið í fyrri rannsóknum á kaupákvörðunarstílum. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 1.295 hunda- og kattaeigendur. Hundaeigendur voru í talsverðum meirihluta eða tæp 70% þátttakenda. Niðurstöður þáttagreiningar kallaði fram fimm þátta lausn sem hægt var að nota til að lýsa kaupákvörðunarstílum hunda- og kattaeigenda. Þættirnir voru: Áhersla á gæði, áhersla á verð, ringlun vegna valkosta, áhersla á vörumerki og fjölbreytni og nýjungar. Fyrstu þrír þættirnir flokkast til nytjahyggjustíla og hinir tveir til nautnahyggjustíla. Hunda- og kattaeigendur virtust almennt leggja áherslu á gæði fóðurs og voru ekki mikið fyrir nýjungar eða fjölbreytni hvað varðar fóður fyrir dýrin sín. Hundaeigendur virtust leggja meiri áherslu á gæði, en kattaeigendur virtust leggja meiri áherslu á fjölbreytni og nýjungar á gæludýrafóðri. Hundaeigendur virtust hafa sterkari tengsl við hundana sína heldur en kattaeigendur við kettina sína. Eigendur sem eru barnlausir hafa sterkari tengsl við dýrin sín heldur en þeir eigendur sem eiga bæði börn og gæludýr."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Kaupákvörðunarstílar hunda- og kattaeigenda við val á gæludýrafóðri"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskóli Íslands"],"dc:creator":["Berglind María Hlín Waagfjörð 1990-"],"dc:date.accessioned":["2017-05-12T13:40:14Z"],"dc:date.available":["2017-05-12T13:40:14Z"],"dc:date.issued":["2017-05-12"],"dc:description.abstract":["Kaupákvörðunarstílar hjálpa til við að skilja kauphegðun markaðar og geta verið mismunandi eftir löndum, menningarheimum og vöruflokkum. Þekking á kaupákvörðunarstílum er mikilvægt hjálpartæki fyrir markaðsfólk til að miða markaðsaðgerðir betur að þeim markhópum sem búa yfir sömu kaupákvörðunarstílum. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna kaupákvörðunarstíla hunda- og kattaeigenda á gæludýrafóðri. Einnig var samband og tengsl eigendanna við gæludýrin könnuð. Rannsóknin var megindleg og var spurningalisti hannaður að mestu út frá mælitækjunum CSI og CDMS sem notuð hafa verið í fyrri rannsóknum á kaupákvörðunarstílum. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 1.295 hunda- og kattaeigendur. Hundaeigendur voru í talsverðum meirihluta eða tæp 70% þátttakenda. Niðurstöður þáttagreiningar kallaði fram fimm þátta lausn sem hægt var að nota til að lýsa kaupákvörðunarstílum hunda- og kattaeigenda. Þættirnir voru: Áhersla á gæði, áhersla á verð, ringlun vegna valkosta, áhersla á vörumerki og fjölbreytni og nýjungar. Fyrstu þrír þættirnir flokkast til nytjahyggjustíla og hinir tveir til nautnahyggjustíla. Hunda- og kattaeigendur virtust almennt leggja áherslu á gæði fóðurs og voru ekki mikið fyrir nýjungar eða fjölbreytni hvað varðar fóður fyrir dýrin sín. Hundaeigendur virtust leggja meiri áherslu á gæði, en kattaeigendur virtust leggja meiri áherslu á fjölbreytni og nýjungar á gæludýrafóðri. Hundaeigendur virtust hafa sterkari tengsl við hundana sína heldur en kattaeigendur við kettina sína. Eigendur sem eru barnlausir hafa sterkari tengsl við dýrin sín heldur en þeir eigendur sem eiga bæði börn og gæludýr."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/27566"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Viðskiptafræði","Kauphegðun","Markaðsfræði","Gæludýrafóður"],"dc:title":["Kaupákvörðunarstílar hunda- og kattaeigenda við val á gæludýrafóðri"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T21:39:44Z"}