University of Iceland
Heimspekingurinn Guðmundur Finnbogason: Heimspekilegir undirtónar Lýðmenntunar
Abstract
dc:description.abstractHér verður leitast við að skoða þá menntahugsjón sem Guðmundur Finnbogason setur fram í riti sínu Lýðmenntun sem fyrst kom út 1903. Markmið ritsins var að útlista gildi menntunar, í hverju hún fælist og hvaða stefnu skólamál skyldi taka hér á landi. Þegar Guðmundur ritaði verkið var engin skólastefna ríkjandi á Íslandi og jafnframt ríktu vissar efasemdir um gildi menntunar. Árið 1901 fékk Guðmundur, þá nýútskrifaður magister í heimspeki með sálfræði sem aðalgrein, tveggja ára styrk frá Alþingi til að halda utan og kynna sér menntamál nágrannaþjóðanna, svo hægt væri að koma menntamálum á Íslandi í sæmandi horf. Afrakstur rannsóknarinnar var síðan sett fram í ritinu Lýðmenntun, en það rit inniheldur sterka menntahugsjón þar sem gildi, markmið og framkvæmd haldast þétt í hendur. Í bókinni má kenna ýmissa grasa úr lífsögu og menntun Guðmundar, þar sem greina má sterka heimspekilega undirtóna þá sér í lagi í fyrsta kafla verksins sem ber heitið „Menntun“. Meginmarkmið þessa verkefnis er að varpa ljósi á þær heimspekilegu stefnur og strauma er virðast birtast í Lýðmenntun þar sem sérstaklega verður einblínt á fyrsta kafla bókarinnar. Menntahugsjón Guðmundar verður sett í samhengi við kenningar tveggja áhrifamikilla vestrænna heimspekinga; þeirra Aristótelesar og David Hume. En líkindi þessa höfunda verða greind með bakgrunn Guðmundar til hliðsjónar svo og ríkjandi strauma innan fræðanna og þjóðfélagsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ingi Jóhann Friðjónsson 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/27330
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/27330