University of Iceland
Leitin að jihad: Samanburður á talíbönum, al Kaída og Íslamska ríkinu
Abstract
dc:description.abstractHryðjuverk hafa átt sér stað víðs vegar um heiminn í gegnum söguna og hafa margir róttækir hryðjuverkahópar litið dagsins ljós m.a. í Evrópu. Í þessari ritgerð verður lögð áhersla á að skoða þrjá hryðjuverkahópa talíbana, al Kaída og Íslamska ríkið. Einnig verður skoðað hvernig þeir urðu til og markmið þeirra borin saman. Til þess að reyna að skilja uppruna slíkra hópa verður notast við kenningar um félagslegar hreyfingar en þær byrjuðu að þróast um 1960. Kenningar um félagslegar hreyfingar hafa lagt fram nauðsynlegan hugtakaramma til þess að skilja pólitískt ofbeldi og hryðjuverkastarfsemi nútímans. Kenningarnar líta svo á að hryðjuverk séu afurð pólitískra átaka. Svæðið milli Íran og Miðjarðarhafs hefur í seinni tíð oftar en ekki einkennst af efnahagslegum og pólitískum deilum og hefur svæðið nánast verið óstöðugt síðan Ottómanveldið féll fyrir u.þ.b. hundrað árum. Rætur þessara deilna eiga sér langa sögu og hafa aukist eftir árásina á World Trade Center í New York árið 2001. Árásin hrinti af stað mörgum hræðilegum atburðum í Miðausturlöndum. Einnig snúast margar deilur á svæðinu um olíu sem fær mun minni athygli en allt annað. Hugtakið jihad kemur oft fyrir í ritgerðinni en það er oft þýtt sem ,,heilagt stríð“ sem gefur hins vegar ekki nægilega góða mynd af merkingu þess. Hugtakið heilagt stríð var fyrst notað um hernaðarleiðangra kristinna manna gegn múslímum árið 1095. Á arabísku þýðir orðið átök eða barátta. Jihad getur því verið innri barátta einstaklinga við eigin eðlishvöt eða barátta til þess að byggja upp gott samfélag múslíma. Margir af þeim sem gengu til liðs við talíbana, al Kaída og Íslamska ríkið leituðu eftir því að finna jihad.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bjarndís Rúna Sigurðardóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 10Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/27247
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/27247