University of Iceland
„Þetta er bara öðruvísi“: Skynjun og upplifun kayakræðara á náttúrunni
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi er 10 eininga lokaverkefni og hluti af Baccalaureus Scientiarum (BS) gráðu í Ferðamálafræði við Háskóla Íslands. Markmið ritgerðarinnar var að kanna hvernig kayakræðarar með hreyfingu sinni upplifa og skynja landslagið. Rannsóknarniðurstöður byggja á greiningu hálfstaðlaðra viðtala við sjö reynda kayakræðara sem flestir róa allan ársins hring. Viðtölin voru tekin á tímabilinu frá mars til apríl 2015. Niðurstöður leiða í ljós að upplifun frá sjó getur verið talsvert öflugri heldur en frá landi þar sem kayak opnar ekki aðeins aðgengi að afskekktari stöðum heldur gefur hann aðra sýn á landslagið. Sjólagið getur verið breytilegt frá einum degi til annars þannig að á kunnuglegu svæði er alltaf eitthvað nýtt að sjá sem eykur upplifunina. Kayakræðarar finna fyrir smæð sinni gagnvart náttúruöflunum en upplifa samt sem áður mikla frelsistilfinningu, tíminn skiptir ekki öllu máli og auðvelt er að vera einn með sjálfum sér. Lykilorð: sjó-kayak, sjór, upplifun, skynjun, náttúra, dýralíf, öryggi
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigríður Thorsteinson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26739
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26739