Abstract
dc:description.abstractTyrkland hefur síðastliðinn áratug náð að festa sig í sessi sem einn af áhugaverðustu ferðamannastöðum í heiminum. Uppbygging í ferðaþjónustu landsins hefur vaxið gríðarlega hratt og er því lítill skortur á hótelgistingum, sólarströndum og veitingastöðum til að anna eftirspurn ferðamanna. Höfundur þessarar ritgerðar hefur dvalist á Tyrklandi sem starfsmaður í ferðaþjónustu undanfarin þrjú sumur og er því mjög annt um land og þjóð. Í dag ríkir mikið ófriðarástand í nágrannalöndum Tyrklands og því miður hefur það náð til landsins með alvarlegum afleiðingum. Þetta hefur augljóslega haft í för með sér gríðarlega fækkun ferðamanna og slæm áhrif á efnahag landsins sem og þau fjölmörgu störf tengd ferðaþjónustu. Höfundur þurfti því miður að upplifa þennan veruleika þar sem ekki var lengur talin þörf á starfskröftum hans nú í sumar sökum ástandsins. Viðfangsefni ritgerðarinnar er höfundi afar hugfangið þar sem leitast er við að svara rannsóknarspurningunni hver ímynd Tyrklands er sem ferðamannastaður og hver áhugi almennings sé að ferðast þangað í náinni framtíð. Í ritgerðinni er stuðst við fræðileg hugtök sem tengjast ferðamennsku og með áherslu á ferðamennsku í Tyrklandi. Ritgerðinni er skipt í tvo hluta. Sá fyrri er fræðilegur þar sem meðal annars farið er yfir hugtökin ferðaþjónustu og ímynd. Í síðari hlutanum er greint frá niðurstöðum rannsóknar, þar sem megin markmið var að kanna hver ímynd Tyrklands væri. Sendur var út spurningalisti á alla grunnnema við Háskóla Íslands. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að skiptar skoðanir eru um ímynd Tyrklands. Almennt hafa konur jákvæðari ímynd af Tyrklandi sem ferðamannstað heldur en karlar. Niðurstöðurnar eru mikilvæg vísbending meðal annars fyrir þær íslensku ferðaskrifstofur sem hafa og hyggjast bjóða upp á ferðir til landsins og hvaða áherslur leggja skuli á við markaðssetningu til að endurvekja traust og áhuga markhópsins til landsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Katrín White 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26726
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26726