Back to results

University of Iceland

Greiðsluþátttaka krabbameinssjúklinga. Samanburður við Norðurlöndin

Abstract

dc:description.abstract

Krabbamein er sífellt að verða algengara vandamál í heiminum í dag en að meðaltali greinist einn af hverjum þremur einstaklingum með krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni. Gríðarlegur kostnaður getur fylgt því að greinast með krabbamein. Greiða þarf fyrir alla þá heilbrigðisþjónustu sem sjúklingurinn en að auki bætist við kostnaður sem hann verður fyrir á borð við vinnutap. Greiðsluþátttaka krabbameinssjúklinga er mikið í umræðunni og taldi höfundur það mikilvægt málefni til að kanna betur. En greiðsluþátttaka krabbameinssjúklinga hér á landi er einmitt viðfangsefni þessarar ritgerðar og hún borin saman við greiðsluþátttöku krabbameinssjúklinga á hinum Norðurlöndunum. Greiðsluþátttaka krabbameinssjúklinga getur verið mjög misjöfn eftir hvers kyns krabbamein sjúklingurinn greinist með en flestir sjúklingar fá samt sömu eða svipaða þjónustu. Í fyrstu þarf krabbameinið að greinast og getur það tekið nokkra læknistíma og rannsóknir áður en byrjað er að meðhöndla sjúkdóminn. Því má sjá að kostnaðurinn safnast hratt saman. Þegar búið að er að greina sjúklinginn með krabbamein þarf að sinna vandanum og getur margt komið til greina, til dæmis skurðaðgerð, geislameðferð eða lyfjameðferð. Farið verður yfir hvað sjúklingar á Íslandi þurfa að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu hér á landi miða við sambærilega þjónustu á hinum Norðurlöndunum, ásamt því að fara yfir fjárveitingar hverrar þjóðar til heilbrigðismála og hvernig greiðsluþátttökukerfi er uppsett á Íslandi miða við í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Ísland ver minnsta hlutfallinu af vergri landsframleiðslu til heilbrigðismála miða við hin Norðurlöndin og ljóst er að hið opinbera á hinum Norðurlöndunum tekur meiri þátt í útgjöldum vegna heilbrigðisþjónustu og lyfjakostnaðar en það sem sést hér á landi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • María Björk Hauksdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26537
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26537

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

María Björk Hauksdóttir 1992-. Greiðsluþátttaka krabbameinssjúklinga. Samanburður við Norðurlöndin. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26537