Back to results

University of Iceland

„Fagleg vinnubrögð í ferlinu skipta öllu máli“ Reynsla fagaðila af raunfærnimati á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á reynslu fagaðila í raunfærnimati, viðhorf þeirra og fulltrúa formlega skólakerfisins til nemenda sem koma inn í nám eftir raunfærnimat. Tekin voruð hálfstöðluð viðtöl við náms- og starfsráðgjafa, verkefnastjóra, matsaðila og fulltrúa skólakerfisins með það að leiðarljósi að fá fram reynslu og þekkingu af störfum þeirra tengdum raunfærnimati. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að viðhorf til ráðgjafar í raunfærnimati eru jákvæð og að fagaðilar eru sammála um að faglegra vinnubragða sé gætt í hvívetna í gegnum ferlið. Ráðgjöfin er talin mikilvæg og í góðum farvegi en eftirfylgnin mætti vera meiri að loknu raunfærnimati. Táknmynd samhæfingar fagaðila var áberandi einkenni í niðurstöðum rannsóknarinnar, þar sem öflugt fagfólk, gott matstæki og góð samvinna eru í fyrirrúmi. Mikill áhugi og gleði við vinnuna tengir fagfólkið saman og það er sammála um að ryðja úr vegi hindrunum sem verða í starfinu. Vandamál í raunfærnimatsferlinu eru helst tengd skorti á fjármagni eða misskiptingu þess. Enn fremur kom fram að viðhorf skólakerfisins gagnvart raunfærnimatsnemendum eru jákvæð, sérstaklega í þeim tilvikum þar sem skólakerfið gerir ráð fyrir viðkomandi nemendum. Niðurstöður rannsóknarinnar eru til dæmis nytsamlegar fulltrúum formlega skólakerfisins og framhaldsfræðslunnar sem sjá um framkvæmd og þróun raunfærnimats.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vigdís Thorarensen Finnbogadóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26509
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26509

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vigdís Thorarensen Finnbogadóttir 1983-. „Fagleg vinnubrögð í ferlinu skipta öllu máli“ Reynsla fagaðila af raunfærnimati á Íslandi. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26509