University of Iceland
Félagsráðgjöf og fóstureyðingar. Fóstureyðingarráðgjöf félagsráðgjafa 1975-2016
Abstract
dc:description.abstractRannsókn þessi fjallar um störf félagsráðgjafa sem sinna fóstureyðingarráðgjöf á kvennadeild Landspítalans. Áhersla var lögð á að skoða hvað felst í starfi þeirra, hvaða breytingar þeir myndu vilja sjá á fóstureyðingarlöggjöfinni og hvaða þróun hefur orðið á starfi þeirra. Markmiðið var því að kortleggja þróun á starfi, breytingar á löggjöf og starfið sjálft. Tilgangur rannsóknar var að varpa ljósi á þær breytingar sem hafa orðið á starfi félagsráðgjafa sem sinna og hafa sinnt fóstureyðingarráðgjöf við Landspítalann á árunum 1975 til 2016. Við rannsóknina var eigindlegum aðferðum beitt en tekin voru hálfstöðluð viðtöl við sjö þátttakendur. Notast var við viðtalsvísi til að tryggja að svör við rannsóknarspurningum kæmu fram. Reynt var að fá þátttakendur til að spanna það tímabil sem var til skoðunar en rannsakandi náði ekki tali af félagsráðgjöfum sem voru starfandi á árunum 2007 til 2011. Helstu niðurstöður rannsóknar eru þær að hæg þróun hefur verið á starfi félagsráðgjafa frá árinu 1975 og til dagsins í dag. Helsta breytingin er að símtalið þegar konur hringja og panta tíma hjá félagsráðgjafa er orðið að fyrsta viðtali sem nýtt er til að skima eftir þeim konum sem þurfa á ráðgjöf að halda og svo hins vegar lyfjaleiðin sem nú er í boði fyrir konur. Viðmælendur töldu lyfjaleiðina vera mikilvæga í ljósi þess að hún einfaldar ferlið fyrir konur, þær sleppa við svæfingu og aðgerð og einnig í ljósi þess að þeir telja lyfjaleiðina vera auðveldari fyrir konur tilfinningalega séð. Aðrar mikilvægar niðurstöður eru að allir viðmælendur voru sammála um að breytingar þyrftu að verða á löggjöf um fóstureyðingar og voru sammála um að fóstureyðingar ættu að vera gerðar að ósk kvenna fram að ákveðnum tíma. Draga má þær ályktanir út frá niðurstöðum að félagsráðgjafar sem starfa við kvennadeild Landspítalans við fóstureyðingarráðgjöf sinni starfi sínu vel og hafi frá upphafi boðið upp á góða þjónustu. Einnig skein það í gegn í viðtölunum að félagsráðgjöfum er mjög umhugað um starf sitt, um konurnar sem þeir töluðu við og almennt um réttindi kvenna til fóstureyðinga. Lykilorð: fóstureyðingar, félagsráðgjöf, fóstureyðingarráðgjöf, réttur til fóstureyðinga, heilbrigðisfélagsráðgjöf.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sædís Ösp Valdemarsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26392
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26392