Back to results

University of Iceland

Samanburður á milli heildarúrkomu á og afrennslis af vatnasviði Sandár í Þistilfirði á fimm ára tímabili (2004 - 2008)

Abstract

dc:description.abstract

Vatnsföllum á Íslandi er skipt í þrjá flokka eftir uppruna árvatns og rennslisháttum í lindár, dragá og jökulár. Vatn er sífellt að breyta um fasa og færast úr einum stað til annars. Þessi hringrás kallast einfaldlega hringrás vatns. Uppruni yfirborðsvatna er í úrkomu sem fellur á land. Sandá í Þistilfirði telst til dragáa en er líka með talsverðum einkennum lindár. Rannsókn þessi fólst í því að skoða heildarafrennsli af og heildarúrkomu á vatnasviði árinnar. Leitast var við að sjá hvort úrkoman sem fellur á vatnasvið árinnar skili sér strax eða tafarlítið til árinnar. Fengin voru hefðbundin afrennslis- og úrkomugögn frá Veðurstofu Íslands. Einnig voru fengin gögn úr HARMONIE veðurspárlíkani Veðurstofunnar en líkanið dreifir úrkomunni yfir vatnasviðið. Úrvinnsla gagnanna fór fram í tölfræðiforritinu R, Matlab og Microsoft Excel. Samspil veðurfars og jarðfræði ræður miklu um rennslishætti vatnsfalla. Berggrunnurinn sem Sandá rennur á er ekki alveg einsleitur. Meirihluti hans er úr basískum og ísúrum hraunum en lítilsháttar er af móbergi á milli hraunlaga, sem gerir það að verkum að jarðlektin er mismunandi á vatnasviði Sandár. Reiknað var heildarafrennsli og heildarúrkoma af vatnasviðinu. Greinileg fylgni var á milli afrennslisins og úrkomunnar og var sú ályktun dregin að langmestur hluti af úrkomunni skilaði sér beint til ána og að endingu til Sandár. Við nánari skoðun á niðurstöðunum kom í ljós að talsverður munur var á magni úrkomu og heildarafrennsli vatnasviðsins um Sandá. Hugsanlega má rekja það til skekkju í fyrirliggjandi gögnum eða við úrvinnslu á þeim.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnar Hlynsson 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26203
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26203

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnar Hlynsson 1992-. Samanburður á milli heildarúrkomu á og afrennslis af vatnasviði Sandár í Þistilfirði á fimm ára tímabili (2004 - 2008). 2016. http://hdl.handle.net/1946/26203