Abstract
dc:description.abstractÍslamófóbíu má lýsa sem tilhæfulausri andúð gagnvart múslimum og orðræðu og hegðun tengdri áðunefndri andúð. Er ritgerðinni ætlað að veita heildræna, hnattræna sýn á stöðu mála í þessum málaflokki og jafnframt upplýsa lesandann um hvað íslamófóbía er og hver tilurð hennar er. Múslimar mega þola gífurlega fordóma víða í vestrænu samfélagi og eru þeir ýmist komnir frá stjórnvöldum, fjölmiðlum eða einstaklingum samfélagsins. Athuga ég meðal annars samfélag múslima á heimsvísu ásamt því að líta yfir kenningarlega sögu mannfræðinnar hvað íslamófóbíu varðar. Þá fjalla ég einnig um hnattvæðingu íslam og áhrif hennar á aukna fordóma og andúð gagnvart múslimum hvarvetna. Einnig kafa ég ofan í veruleika múslimskra kvenna en mega þær þola mikla fordóma frá vestrænu samfélagi af völdum samfélagslegra aðstæðna sinna. Þá er vert að nefna athugun mína á áhrif hryðjuverka múslimskra öfgamanna á ímynd múslima hvarvetna og sjálf þeirra. Íslamófóbía er raunverulegt alþjóðlegt vandamál sem sér ekki fyrir endann á ásamt því að hafa ómæld áhrif á líf ótal einstaklinga. Fordómarnir sem birtast víða í vestrænu samfélagi gagnvart múslimum eru gífurlegir og hafa þær staðalímyndir sem fordómarnir ala af sér uggvænlegar afleiðingar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóhann Páll Ástvaldsson 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26111
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26111