Back to results

University of Iceland

Íslamófóbía. Fordómar gagnvart múslimum í hnattrænu samhengi

Abstract

dc:description.abstract

Íslamófóbíu má lýsa sem tilhæfulausri andúð gagnvart múslimum og orðræðu og hegðun tengdri áðunefndri andúð. Er ritgerðinni ætlað að veita heildræna, hnattræna sýn á stöðu mála í þessum málaflokki og jafnframt upplýsa lesandann um hvað íslamófóbía er og hver tilurð hennar er. Múslimar mega þola gífurlega fordóma víða í vestrænu samfélagi og eru þeir ýmist komnir frá stjórnvöldum, fjölmiðlum eða einstaklingum samfélagsins. Athuga ég meðal annars samfélag múslima á heimsvísu ásamt því að líta yfir kenningarlega sögu mannfræðinnar hvað íslamófóbíu varðar. Þá fjalla ég einnig um hnattvæðingu íslam og áhrif hennar á aukna fordóma og andúð gagnvart múslimum hvarvetna. Einnig kafa ég ofan í veruleika múslimskra kvenna en mega þær þola mikla fordóma frá vestrænu samfélagi af völdum samfélagslegra aðstæðna sinna. Þá er vert að nefna athugun mína á áhrif hryðjuverka múslimskra öfgamanna á ímynd múslima hvarvetna og sjálf þeirra. Íslamófóbía er raunverulegt alþjóðlegt vandamál sem sér ekki fyrir endann á ásamt því að hafa ómæld áhrif á líf ótal einstaklinga. Fordómarnir sem birtast víða í vestrænu samfélagi gagnvart múslimum eru gífurlegir og hafa þær staðalímyndir sem fordómarnir ala af sér uggvænlegar afleiðingar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhann Páll Ástvaldsson 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26111
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26111

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhann Páll Ástvaldsson 1991-. Íslamófóbía. Fordómar gagnvart múslimum í hnattrænu samhengi. 2016. http://hdl.handle.net/1946/26111