Back to results

University of Iceland

IFRS 13 Mat á gangvirði

Abstract

dc:description.abstract

Mat á gangvirði byggir á breytum eins og markaðsverði, vöxtum og áhættu, IFRS 13 flokkar þessar breytur niður í þrjú þrep eftir því hversu sannreynanlegar breyturnar eru. Breytur sem falla í 1. þrep eru sannreynanlegastar og hafa mesta vægi, þær sem falla í 3. þrep eru ósannreynanlegar og hafa minnsta vægið og breytur sem falla í 2. þrep eru samblanda þar á milli. Flokkunin miðast við hversu mikið breyturnar eru háðar huglægu mati. Breytur sem flokkast undir 1. þrep eru skráð markaðsverð á virkum markaði og eru ekki háðar huglægu mati, á meðan breytur sem falla í 3. þrep byggja á útreikningum um vænta atburði í framtíðinni og eru þar af leiðandi háðar miklu huglægu mati. Gangvirðismöt geta notast við breytur úr fleiri en einu þrepi og fellur þá gangvirðismatið í sama þrep og sú breyta sem er í lægðsta þrepinu. Til dæmis myndi gangvirðismat sem notar bæði breytur úr 2. og 3. þrepi, falla undir 3. þrep gangvirðisstiga IFRS 13. Skoðað var hversu stórir hlutar eigna, sex skráðra félaga í Kauphöll Íslands (þrjú fasteignafélög og þrjú tryggingafélög), voru skráðir á gangvirði í gegnum rekstrarreikning undir 3. þrepi gangvirðisstiga IFRS 13. Þar að auki voru áhrif matsbreytingar eigna, metnar á gangvirði undir 3. þrepi, á rekstrarreikning félaganna einnig skoðuð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sveinn Karlsson 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26088
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26088

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sveinn Karlsson 1984-. IFRS 13 Mat á gangvirði. 2016. http://hdl.handle.net/1946/26088