Abstract
dc:description.abstractÍslenska hagkerfið lenti í banka- og gjaldeyriskreppu á árinu 2008, en íslenska krónan veiktist um 80% á árinu. Kreppunni svipar á margan hátt til gjaldeyriskreppunnar í Mexíkó árið 1994 og fjármálakreppunnar sem reið yfir mörg lönd Austur-Asíu árið 1997. Sameiginlegir orsakavaldar eru mikill viðskiptahalli, vöxtur í innstreymi erlends fjármagns og útlánaaukning bankakerfisins. Gjaldeyrisforði þessara landa var einnig lítill miðað við Greenspan-Guidotti regluna. Háir vextir og jákvæðar hagvaxtarhorfur voru meðal hvata erlendra fjárfesta sem lánuðu til fjármálastofnana viðkomandi landa með tilheyrandi útlánaaukningu. Áhrifin voru sjáanleg á hlutabréfa- og fasteignamörkuðum og eignabóla myndaðist. Að lokum leiddi mikið ójafnvægi og óvissa til þess að erlendir fjárfestar kipptu að sér höndum með þeim afleiðingum að framboð erlends lánsfjármagns dróst skyndilega saman. Ójafnvægi skapaðist á gjaldeyrismarkaði og gjaldeyriskreppa varð raunin. Á Íslandi voru bankakreppan og veiking krónunnar samofin í aðdraganda hrunsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigríður Mogensen 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/2589
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/2589