Back to results

University of Iceland

Gjaldeyriskreppur: Lærdómur fyrir Ísland

Abstract

dc:description.abstract

Íslenska hagkerfið lenti í banka- og gjaldeyriskreppu á árinu 2008, en íslenska krónan veiktist um 80% á árinu. Kreppunni svipar á margan hátt til gjaldeyriskreppunnar í Mexíkó árið 1994 og fjármálakreppunnar sem reið yfir mörg lönd Austur-Asíu árið 1997. Sameiginlegir orsakavaldar eru mikill viðskiptahalli, vöxtur í innstreymi erlends fjármagns og útlánaaukning bankakerfisins. Gjaldeyrisforði þessara landa var einnig lítill miðað við Greenspan-Guidotti regluna. Háir vextir og jákvæðar hagvaxtarhorfur voru meðal hvata erlendra fjárfesta sem lánuðu til fjármálastofnana viðkomandi landa með tilheyrandi útlánaaukningu. Áhrifin voru sjáanleg á hlutabréfa- og fasteignamörkuðum og eignabóla myndaðist. Að lokum leiddi mikið ójafnvægi og óvissa til þess að erlendir fjárfestar kipptu að sér höndum með þeim afleiðingum að framboð erlends lánsfjármagns dróst skyndilega saman. Ójafnvægi skapaðist á gjaldeyrismarkaði og gjaldeyriskreppa varð raunin. Á Íslandi voru bankakreppan og veiking krónunnar samofin í aðdraganda hrunsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Mogensen 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/2589
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/2589

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Mogensen 1985-. Gjaldeyriskreppur: Lærdómur fyrir Ísland. 2009. http://hdl.handle.net/1946/2589