Back to results

University of Iceland

„Án titils.“ Jöðrun og þöggun í Persuasion eftir Jane Austen

Abstract

dc:description.abstract

Hér á eftir verður fjallað um skáldsöguna Persuasion sem var eitt síðasta verk Jane Austen með hliðsjón af kenningu Edwins Ardener um jöðrun og þöggun kvenna og kenningu Michel Foucaults um alsæi. Bókin fjallar um Anne Elliot 27 ára ógifta barónsdóttir sem er við það að pipra. Eftir að móðir hennar lést tók hún að sér flestar þær skyldur sem húsmóðir ber, hún sér um samskipti við hjúin, passar börn yngri systur sinnar og miðlar málum þar sem þess er þörf. Eftir því sem líður á bókina tekst Anne að brjótast undan oki fjölskyldunnar er og fylgja sinni eigin sannfæringu. Jöðrunin í bókinni felst aðallega í tilraunum fólks til að falla inn í ramma samfélagsins og þeim samfélagslegu reglum sem verður að fylgja stöðu sinnar vegna. Virðingarstaða innan hópsins byggir á titlakerfi karlmanna. Karlar erfa titilinn og konur reyna eftir bestu getu að giftast karlmönnum með sem besta samfélagslega stöðu. Konur þagga sig að mestu sjálfar, þær sjá um uppeldi barna og kenna þeim „rétta“ hegðun, stúlkum er kennt að vera hljóðlátar og sætar og drengjum að koma kurteisislega fram en hafa þó skoðanir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hulda Lárusdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/2545
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/2545

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hulda Lárusdóttir 1984-. „Án titils.“ Jöðrun og þöggun í Persuasion eftir Jane Austen. 2009. http://hdl.handle.net/1946/2545