Abstract
dc:description.abstractOfbeldi er algengt vandamál á geðdeildum. Ofbeldi hefur áhrif á heilsu, öryggi og velferð sjúklinga og starfsfólks. Því þarf að koma auga á áhættuþætti ofbeldis og finna viðeigandi leiðir sem geta dregið úr því. Markmið þessarar samantektar var að finna þær leiðir sem gætu gagnast til að draga úr ofbeldistilvikum á geðdeildum. Leitað var að rannsóknargreinum sem fjalla um vandamálið og áhættuþætti þess og að rannsóknum á aðferðum til að fyrirbyggja ofbeldi og bregðast við því. Til eru matstæki sem meta áhættu á ofbeldi og geta sagt til um líkur á ofbeldishegðun og í framhaldi er hægt að grípa til viðeigandi ráðstafanna í samræmi við niðurstöður matsins. Tengsl eru á milli umhverfisþátta, skipulags deilda, samsetningar sjúklingahóps og ofbeldis. Mönnun á deild, reynsla starfsfólks og þjálfun þess skiptir máli þegar horft er til ofbeldistilfella. Auk þess hafa samskipti á milli starfsfólks og sjúklinga áhrif. Of strangar reglur á geðdeildum geta verið orsakavaldur ofbeldis og þarf því að vanda til verka þegar reglur eru settar. Hugsanlegt er að skipulögð virkni og notkun slökunarherbergja geti dregið úr ofbeldishegðun sjúklinga. Þegar sjúklingar eru órólegir og sýna af sér hegðun sem getur leitt til ofbeldis er mikilvægt að starfsfólk kunni að bregðast við og geti beint sjúklingum í átt að innri ró. Algengt er að notast sé við meðferðarformið gátir á geðdeildum. Þá hefur starfsfólk nánari gætur á sjúklingum, en gagnsemi gáta er umdeild. Mikilvægt er að að hjúkrunarfræðingar og annað starfsfólk geðdeilda þekki þá þætti sem eru líklegir til að ýta undir ofbeldi og þekki sömuleiðis leiðir til að draga úr því til þess að auka gæði og árangur hjúkrunar. Lykilorð: Ofbeldi á geðdeildum, fyrirbygging, sjúklingar, hjúkrunarfræðingar, starfsfólk, umhverfi og samskipti.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Vala Karen Gunnarsdóttir 1991-
- Helena Aagestad 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/24743
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/24743