Back to results

University of Iceland

Kostnaður vegna viðskipta með greiðslumark í landbúnaði. Hvar lenda beingreiðslurnar frá ríkinu?

Abstract

dc:description.abstract

Mikið hefur verið fjallað um óhagkvæmni stuðningskerfis íslenska landbúnaðarins bæði í aðdraganda og kjölfar nýrra búvörusamninga á milli íslenska ríkisins og Bændasamtaka Íslands sem voru undirritaðir í febrúar 2016. Þá hefur sérstaklega verið deilt um svokallað greiðslumarkskerfi. Ritgerðin fjallar um stuðningskerfi landbúnaðarins og sérstök áhersla er lögð á stuðning í formi beingreiðslna. Markmið ritgerðarinnar er að skoða hvort ríkisstuðningur í formi beingreiðslna tapist úr greininni vegna viðskipta með greiðslumark og hvort ákveðnir aldurshópar beri meiri kostnað af stuðningskerfinu en aðrir. Í ritgerðinni er farið yfir stöðu búa samkvæmt búreikningum og hvort munur sé á rekstrar- og efnahagsreikningum búa eftir aldri bænda og landshlutum. Niðurstöður ritgerðarinnar leiða í ljós að þær fjárhæðir sem tapast úr kerfinu vegna viðskipta með greiðslumark er frekar háð því á hvaða tíma viðskiptin eru heldur en að kostnaðurinn leggist þyngra á ákveðna hópa. Það er þó ljóst að þeir bændur sem fengu styrknum úthlutað í upphafi nutu góðs af þeim en eftirmenn upphaflegu styrktarþegnanna hafa þurft að gjalda fyrir þá.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólöf Lovísa Jóhannsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/24593
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/24593

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólöf Lovísa Jóhannsdóttir 1992-. Kostnaður vegna viðskipta með greiðslumark í landbúnaði. Hvar lenda beingreiðslurnar frá ríkinu?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/24593