University of Iceland
„Að fæðast til frelsisins.“ Tilurð hinnar róttæku sjálfsveru í Marinaleda
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi er afrakstur etnógrafískrar vettvangsrannsóknar sem gerð var í smábænum Marinaleda á Spáni. Í kjölfar dauða einræðisherrans Franco réðust íbúar í andóf til þess að krefjast viðurkenningar í hinum félagslega veruleika. Uppfrá því hefur baráttan sem orðræða verið miðlæg í bænum. Markmið rannsóknarinnar var að skoða tengsl valds, andófs og sjálfsverulegra ferla og rakin var tilurð hinnar hinnar róttæku sjálfsveru í Marinaleda. Spurt var hvernig íbúar gátu endurskapað sig og komið á nýjum forsendum inn í aðstæður sem vanrækja, þagga og jaðarsetja. Róttækur atbeini er túlkaður sem gagn-orðræða gegn áherslum yfirvalda á nútímavæðingu og nýfrjálshyggju en sú þróun gengisfelldi líf bændanna. Fjallað er um orðræðu íbúanna í tengslum við kenningar um sjálfumleika, sjálfsveru, virði og minningar. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru á þá leið að það séu síður en svo bein tengsl milli jaðarsetningar og fátæktar annars vegar og andófs hins vegar. Til að svo megi verða þarf til margbrotið ferli þar sem sjálfsveran, merkingarheimurinn og hin félagslega formgerð er í sífelldum gagnvirkum tengslum og umbreytist í gegnum orðræðu og iðkun. Það er aðeins þegar sköpun nýs sjálfumleika, hið orðræðubundna minni, uppreisnargjörn reynsla og stjórnmálavæddar tilfinningar koma saman sem hin róttæka sjálfsvera raungerist.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Unnur Edda Garðarsdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/24294
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/24294