University of Iceland
Móðir með mæðrum. Áhrif mömmuhópa á sjálfsmynd mæðra með fyrsta barn
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi er lokaverkefni höfundar til BA-gráðu í félagsfræði við Háskóla Íslands. Í ritgerðinni er leitast við að skoða sjálfsmynd mæðra. Sérstaklega er kastljósinu beint að frumbyrjum með barn á fyrsta ári og hvernig svokallaðir mömmuhópar á Facebook hafa áhrif á sjálfsmynd þeirra. Til að skoða það var framkvæmd eigindleg rannsókn á fimm mæðrum með fyrsta barn og tengsl Facebook mömmuhópa og sjálfsmyndar skoðuð. Rannsóknin var framkvæmd með hálf-opnum viðtölum við mæðurnar og þau síðar afrituð og greind. Einnig voru fyrri kenningar og rannsóknir notaðar til að varpa betur ljósi á viðfangsefnið. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að mömmuhópar á Facebook geta bæði haft jákvæð og neikvæð áhrif á sjálfsmynd mæðra. Stuðningur innan hópanna hefur jákvæð áhrif á sjálfsmynd þeirra en öfund og afbrýðisemi hefur neikvæð áhrif á sjálfsmyndina. Einnig eru hóparnir sérstaklega mikilvægir fyrir frumbyrjur en þær leita þar eftir staðfestingu á að þær séu að standa sig vel í þessu nýja hlutverki sem móðir.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Heiðdís Geirsdóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/24277
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/24277