Abstract
dc:description.abstractUmfjöllunarefni ritgerðarinnar er börn með erlendan bakgrunn á Íslandi. Í eftirfarandi köflum verður fjallað um bakgrunn þessara barna og stöðu með það að markmiði að tengja umræðuna við ýmis hugtök sem eiga við, svo sem menningu, fjölmenningu, þverþjóðleika og aðlögum. Vaxandi fólksflutningar milli landa kalla á aukna umræðu um stöðu innflytjenda, sérstaklega barna sem í hlut eiga en ákveðinn skortur hefur verið á þekkingu um málefni barna með erlendan bakgrunn. Þrátt fyrir að umræðuefnið sé börn á Íslandi með erlendan bakgrunn er einnig farið yfir málefni barna með erlendan bakgrunn á alþjóðavísu vegna þess að erlendar rannsóknir um málefnið eru mun viðameiri og til eru ítarlegri erlendar upplýsingar um þessa einstaklinga heldur en íslenskar. Einnig er gagnlegt að bera saman erlendar rannsóknir við íslenskar, til þess að varpa frekara ljósi á málefnið. Fjallað er um aðstæður þessara barna í íslenskum skólum og hvernig þeim hefur gengið að fóta sig í því umhverfi. Helstu niðurstöður umræðunnar eru þær að börnum með erlendan bakgrunn á Íslandi gengur verr í skóla en innfæddum jafnöldrum þeirra. Vísbendingar eru á lofti um að þessi börn fái ekki þá aðstoð sem þau þurfa til þess að eiga sömu tækifæri og aðrir.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Svanlaug Björg Másdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/24228
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/24228