University of Iceland
„Við erum … að reyna sporna við brotthvarfi alla daga í sjálfu sér.“ Hvað er verið að gera innan framhaldsskóla til að minnka brotthvarf
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar var að skoða hvað verið er að gera til að sporna við brotthvarfi í framhaldsskólum. Einnig að afla upplýsinga um hvort og þá hvernig nemendur í brotthvarfshættu eru greindir og fá innsýn í hvaða forvarnir og inngrip er stuðst við til að sporna við brotthvarfi innan framhaldsskóla. Ennfremur var markmiðið að leggja mat á það sem gert er fyrir alla nemendur annarsvegar og hins vegar þá sem skilgreinast í brotthvarfshættu. Rannsóknin byggir á eigindlegum rannsóknaraðferðum og voru tekin viðtöl við náms- og starfsráðgjafa sem starfa í framhaldsskólum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að skimað er fyrir áhættuþáttum brotthvarfs. Í máli náms- og starfsráðgjafanna kom fram að innan allra skólanna er verið að nota forvarnir og inngrip fyrir nemendur í þeim tilgangi að minnka líkur á brotthvarfi en misjafnt er milli skóla hversu mörg þau eru og með hvaða fyrirkomulagi. Margir skólar voru að nota sömu úrræði en útfærðu þau á ólíkan hátt. Vonast er til að niðurstöðurnar geti nýst sem innlegg í umræðu um hvað er hægt að gera til að sporna við brotthvarfi framhaldsskólanema. Þær ættu að vera gagnlegar fyrir náms- og starfsráðgjafa sem starfa í framhaldsskólum og eru að varna brotthvarfi með ýmsum hætti.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristín Hrefna Leifsdóttir 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/24184
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/24184