University of Iceland
Altarið - Mizbeah. Rannsóknir á megintilgangi altara í Gamla testamentinu frá tíma Nóa, Abrahams og Móse
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi er unnin út frá rannsóknum helstu fræðimanna varðandi trúarsögu og tilbeiðslu hins forna Ísrael sem er að finna í Gamla testamentinu. Megin áhersla ritgerðarinnar eru ölturun og þróun þeirra í gegnum sögu Gamla testamentisins. Tekið er fyrir mikilvægi altara í trúarlífinu og tengsl þeirra við fórnirnar í hinum forna Ísrael. Gerð er athugun á þeim gagnrýnisröddum sem heyrast hjá 8. aldar spámönnum, í Saltara og spekiritum gagnvart fórnunum og lýsir sér meðal annars í Ok 21.3 þar sem segir: ,,Að ástunda réttlæti og rétt er Drottni þóknanlegra en sláturfórn.“ Í ritgerðinni er fornleifafræðin skoðuð til að varpa ljósi á sannfræði textanna um ölturun í Gamla testamentinu. Litið er til sálmarannsókna og skoðað hvaða sess ölturun skipa í Davíðssálmum. Að lokum eru ölturun í nútíma samfélagi skoðuð og hvað þau eiga margt skylt með ölturum í Gamla testamentinu þar sem Guð mætir manneskjunni í ákalli hennar og bæn með von um svar og leiðsögn.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sóley Herborg Skúladóttir 1960-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/24116
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/24116