Back to results

University of Iceland

Innleiðing ISO 14001 hjá Netpörtum ehf. Lærdómur, kostir og gallar

Abstract

dc:description.abstract

Með aukinni meðvitund um þau áhrif sem fyrirtæki hafa á umhverfi sitt ásamt hertari löggjöf og breyttu viðhorfi almennings til umhverfismála, hafa fyrirtæki í auknum mæli endurskoðað starfsemi sína og breytt henni í þágu umhverfissjónarmiða. ISO (Alþjóðlega staðlaráðið) 14001 staðalinn á rætur sínar að rekja til breyttrar heimssýnar í umhverfismálum og gerir innleiðing hans fyrirtækjum kleift að að byggja upp og reka umhverfisstjórnunarkerfi til að ná fram betri árangri í umhverfismálum sínum. Staðallinn er gefinn út af ISO en sjálfstæðir aðilar sjá um vottun. Alþjóðlegar rannsóknir hafa sýnt fram á að fyrirtæki fara frekar út í innleiðingu á staðlinum til þess að vera leiðandi í umhverfismálum en til þess að ná fjárhagslegum ávinningi. Jafnframt sýna niðurstöður kannana að þátttaka og stuðningur innri og ytri hagsmunaaðila skipti höfuðmáli við innleiðingarferlið. Ýmsir hjallar virðast þó vera á veginum og hafa mörg fyrirtæki sem hefja innleiðingu ekki lokið við að öðlast formlega vottun. Eigindleg könnun á innleiðingu ISO 14001 hjá fyrirtækinu Netpörtum ehf. leiddi í ljós að þar er almenn ánægja með staðalinn og innleiðing hans hefur stuðlað að aukinni skilvirkni í rekstri. Þá telja stjórnendur að hann geti hjálpað fyrirtækinu að vera leiðandi á sviði umhverfismála á þeim vettvangi sem fyrirtækið starfar. Í ljós kom að helstu ókostir sem fylgdu innleiðingunni voru að það er fremur dýrt að öðlast vottun auk þess sem það tekur talsverðan tíma stjórnenda og krefst mikillar skjölunar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristófer Kristófersson 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23739
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23739

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristófer Kristófersson 1990-. Innleiðing ISO 14001 hjá Netpörtum ehf. Lærdómur, kostir og gallar. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23739