Back to results

University of Iceland

Skref í átt að vetnishagkerfinu. Vistferilskostnaðargreining fyrir vetnisáfyllingarstöð: Tilviksrannsókn

Abstract

dc:description.abstract

Hlýnun jarðar hefur verið talið ótvírætt vandamál síðustu ár og hafa helstu merki þess verið bráðnun íss, hækkun meðalhitastigs jarðar og hækkandi sjávarborð. Aðalástæða þessa breytinga hefur verið talin losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum. Ein leið til þess að minnka losun gróðurhúsategunda hefur verið að innleiða nýja og endurnýjanlega orkugjafa eins og vind- og sólarorku. Þessar nýju tækniframfarir fela í sér sveiflukennda framleiðslu sem getur ekki mætt stöðugri orkuþörf. Möguleg lausn á þessu vandamáli er að framleiða vetni úr umframorku fyrrnefndra orkugjafa og umbreyta aftur í rafmagn með efnarafölum eða nota það sem orkugjafa fyrir farartæki. Í þessari rannsókn er markmiðið að skoða vistferilskostnað (e. life cycle cost (LCC)) fyrir vetnisstöð sem tengir endurnýjanlega orkugjafa við lyftara sem notaðir eru á svæðinu þar sem stöðin er staðsett. Notast er við tilviksrannsókn (e. case study) sem aðferðarfræði-ramma en aðal-aðferðin er LCC. Markmiðið var að reikna út heildar vistferilskostnað (e. total life cycle cost (TLCC)) fyrir vetnisstöðina ásamt kostnaði við að framleiða kíló af vetni með jöfnuðu orkuverði (e. levelized cost of energy (LCOE)). Líftíminn var á bilinu 5 til 20 ár.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lúðvík Viktorsson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23672
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23672

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lúðvík Viktorsson 1985-. Skref í átt að vetnishagkerfinu. Vistferilskostnaðargreining fyrir vetnisáfyllingarstöð: Tilviksrannsókn. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23672