Back to results

University of Iceland

Heimilisofbeldi: Er aðgerðaráætlun lögreglu í tengslum við nálgunarbann og brottvísun af heimili að virka sem skyldi?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari heimildaritgerð er fjallað um hugtakið heimilisofbeldi og sjónarljósinu beint að ofbeldi gegn konum. Fjallað verður um aðgerðaráætlun lögreglunnar á Suðurnesjum gegn heimilisofbeldi og lög nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili og hvort þau séu að skila tilætluðum árangri. Niðurstöður sýndu að aðgerðaráætlunin skilaði mun betra samstarfi á milli fagaðila, þar sem helsti kosturinn var snemmtækari íhlutun, meiri stuðningur og eftirfylgni. Málaflokkurinn var í kjölfarið sýnilegri innan lögreglunnar og félagsþjónustunnar ásamt aukinni umræðu og samfélagsvitund. Helstu gallar snúa að skorti á eftirfylgni lögreglu sökum anna. Niðurstöður sýndu einnig að með setningu laganna var stigið stórt skref í baráttunni gegn heimilisofbeldi en það hefur þó ekki náð að framfylgja nálgunarbanni og brottvísun af heimili í öllum tilfellum þar sem önnur löggjöf, almenn hegningarlög nr. 19/1940, skarast á við þau fyrrnefndu. Lykilhugtök: ofbeldi, heimilisofbeldi, nálgunarbann, brottvísun af heimili, lögreglan, félagsþjónustan, félagsráðgjöf.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Björn Már Sveinbjörnsson 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23475
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23475

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Björn Már Sveinbjörnsson 1979-. Heimilisofbeldi: Er aðgerðaráætlun lögreglu í tengslum við nálgunarbann og brottvísun af heimili að virka sem skyldi?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23475