Back to results

University of Iceland

Haltu því gamla en þekktu það nýja: Hefðbundnar kínverskar lækningar á nýjum tímum

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar er að skoða hefðbundnar kínverskar lækningar og stöðu þeirra í kínversku samfélagi. Hefðbundnar kínverskar lækningar eru hluti af heilsumannfræði og verður því fyrst farið í helstu kenningar á því sviði. Þriðji kafli fjallar um grunnhugmyndir hefðbundinna kínverskra lækninga og sögu þeirra. Fjórði kafli er um menningarlegan fjölbreytileika, kínverska menningu og hvernig hefðbundnar kínverskar lækningar eru tengdar henni sem og viðhorf og notkun Kínverja á hefðbundnum kínverskum lækningum. Fimmti kafli fjallar um hefðbundnar kínverskar lækningar og vestrænar lækningar. Þar er skoðað samstarf þeirra og samruna í eitt heilbrigðiskerfi. Að lokum verða rannsóknir á hefðbundnum kínverskum lækningum skoðaðar. Niðurstaða ritgerðarinnar er að hefðbundnar kínverskar lækningar séu nátengdar menningu Kínverja og heimspeki þeirra. Kínverjar eru hlynntir þeirri þróun sem hefur orðið í Kína í heilbrigðisþjónustu um samstarf milli hefðbundinna kínverskra lækninga og vestrænna lækninga. Rannsóknir á þeim þurfa að vera öflugari til að auka virðingu þeirra, útbreiðslu og bæta þarf samstarf á milli hefðbundinna kínverskra lækninga og vestrænna lækninga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þorbjörg Ása Jónsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/2306
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/2306

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þorbjörg Ása Jónsdóttir 1983-. Haltu því gamla en þekktu það nýja: Hefðbundnar kínverskar lækningar á nýjum tímum. 2009. http://hdl.handle.net/1946/2306