Back to results

University of Iceland

Takmarkanir á frádráttarbærni vaxtagjalda í atvinnurekstri

Abstract

dc:description.abstract

Á fyrirsvarsmönnum félaga í rekstri hvílir sú skylda að standa skil á greiðslu skatta í ríkissjóð. Félög hafa hinar ýmsu heimildir í íslenskri löggjöf til þess að draga frá tekjum sínum kostnað sem tengist rekstrinum þ.á.m. vexti af lánum. Megintilgangur ritgerðarinnar er að leitast við að svara hvaða lagalegu takmarkanir gilda um frádráttarbærni vaxtagjalda þ.á.m. á grundvelli laga um tekjuskatt nr. 90/2003 og laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Markmið ritgerðarinnar er að fjalla um þau hugtök sem tengjast atvinnurekstri og frádráttarbærum kostnaði, ásamt því að fjalla um þær lagareglur sem til staðar eru í innlendri löggjöf er takmarka á einhvern hátt heimild félaga í að nýta vaxtakostnað sem frádráttarbær gjöld í reikningsskilum sínum. Við túlkun er litið til dóma og úrskurða með það að markmiði að fá betri sýn á þeim reglum sem í gildi eru. Einnig er fjallað um ábyrgð stjórnvalda, endurskoðenda og stjórnenda félaga þegar kemur að óheimilli nýtingu vaxtafrádráttar í reikningsskilum félaga. Helsta niðurstaða ritgerðarinnar er sú, að til staðar eru óskýr lagaákvæði er takmarka frádráttarbærni vaxtagjalda í kjölfar óeðlilegra lánveitinga þ.á.m. við skuldsettar yfirtökur og öfugan samruna. Inntak tekjuskattslaganna er óskýrt og því nauðsynlegt að marka framtíðarstefnu og setja í lögin sérákvæði sem kveður afdráttarlaust, hvort og hvenær vaxtagjöld séu frádráttarbær í skattskilum félaga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Tinna Gunnarsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22940
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22940

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Tinna Gunnarsdóttir 1984-. Takmarkanir á frádráttarbærni vaxtagjalda í atvinnurekstri. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22940