Back to results

University of Iceland

Hjúkrunarþyngdar- og vinnuálagsmælingar á gjörgæsludeildum, lýsandi rannsókn

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar lýsandi samanburðar rannsóknar er að meta tvö mælitæki, Nursing Activities Score (NAS) og aðlagað RAFAELA (sem samanstendur af aðlöguðu Oulu hjúkrunarþyngdarmælitæki og PAONCIL vinnuálagsmælitæki) og meta hvort þeirra hentar betur til hjúkrunarþyngdar- og vinnuálagsmælinga á gjörgæsludeildum. Úrtak rannsóknarinnar var: 1) sjúklingar og 2) hjúkrunarfræðingar á tveimur gjörgæsludeildum Landspítala og fór gagnasöfnun rannsóknarinnar fram í janúar til febrúar 2009. Mælingar fólust í: 1) forprófun og áreiðanleikamati á þýddum NAS og aðlöguðu Oulu mælitækjum, 2) hjúkrunarþyngdar-mælingum á sjúklingum á gjörgæsludeildum Landspítala með NAS og aðlöguðu Oulu mælitækjum, 3) vinnuálagsmælingum með PAONCIL mælitækinu og 4) mati hjúkrunarfræðinga á NAS, aðlagaða Oulu, og PAONCIL mælitækjunum. Áreiðanleiki mælitækjanna var metinn í forprófun með samræmi svarenda og var samræmið 92% fyrir NAS og 78% fyrir aðlagaða Oulu mælitækið. Framkvæmdar voru 341 hjúkrunarþyngdarmælingar á 98 sjúklingum. Tölfræðilega marktæk meðalsterk jákvæð fylgni reyndist vera milli niðurstaðna úr NAS og aðlagaða Oulu mælitækinu, r(341)=0,72, p=0.000. Meðaltals niðurstaða mælinga með NAS mælitækinu var 73,6% (SD=24,2, miðgildi = 69%, möguleg niðurstaða 0-177%) og 13,9 stig með Oulu mælitækinu (SD=3,4, miðgildi 14, möguleg niðurstaða 6-24 stig). Hærra hlutfall eða stig gefur aukna hjúkrunarþyngd til kynna. Í mælingum með PAONCIL mælitækinu fengust 556 svör og var meðaltals stigun hjúkrunarfræðinga +0,50 (SD = 1,06, möguleg stigun -3 til +3 þar sem 0 þýðir ásættanlegt vinnuálag). Í 48,1% mælinga mátu hjúkrunarfræðingar vinnuálag sitt ásættanlegt og 42,4% frekar hátt til mjög hátt. Í mati hjúkrunarfræðinga á mælitækjunum sem notuð voru í rannsókninni kom fram að flestir eða 72% vilja að NAS mælitækið verði notað til hjúkrunarþyngdar- og vinnuálagsmælinga á gjörgæsludeildum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að áreiðanleiki NAS mælitækisins sé meiri en aðlagaða Oulu mælitækisins. Samleitniréttmæti Oulu mælitækisins í samanburði við NAS er meðal sterkt og hjúkrunarfræðingar á gjörgæsludeildum kjósa frekar að NAS mælitækið verði notað til hjúkrunarþyngdar- og vinnuálagsmælinga á gjörgæsludeildum Landspítalans. Því er talið heppilegra að nota NAS mælitækið til hjúkrunarþyngdar- og vinnuálagsmælinga á gjörgæsludeildum í framtíðinni. Lykilorð: gjörgæsluhjúkrun, gjörgæsludeild, hjúkrunarþyngd, hjúkrunarþyngdarmælingar, vinnuálag hjúkrunarfræðinga, vinnuálagsmælingar

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnar Helgason 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/2293
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/2293

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnar Helgason 1976-. Hjúkrunarþyngdar- og vinnuálagsmælingar á gjörgæsludeildum, lýsandi rannsókn. 2009. http://hdl.handle.net/1946/2293