Back to results

University of Iceland

Hlustum á raddir foreldra : viðhorf, reynsla og skoðun foreldra fatlaðra barna á skólastarfi

Abstract

dc:description.abstract

Stefnan Skóli án aðgreiningar gengur út á að allir nemendur óháð fötlun eða námsgetu, hafi jafnan rétt á að stunda nám í sínum heimaskóla með viðeigandi stuðning. Þrátt fyrir það eru starfræktar sérdeildir sem og sérskólar. Skóli án aðgreiningar hefur verið mikið í umræðunni undanfarin ár og hafa margir sterkar en ólíkar skoðanir á hugmyndafræðinni. Viðfangsefni þessarar ritgerðar eru niðurstöður eigindlegrar rannsóknar sem unnin var á vorönn 2015. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á viðhorf og reynslu foreldra gagnvart almennum grunnskólum annars vegar og sérskólum hins vegar. Í ritgerðinni er stiklað á stóru hvað varðar menntun barna með sérþarfir og ólík sjónarhorn á fötlun. Við framkvæmd rannsóknarinnar var stuðst við viðtalsramma og viðtöl tekin við foreldra barna í sérdeildum, sérskólum og almennum grunnskóla. Raddir foreldra eru mikilvægar að því leyti að varpa ljósi á það hversu ólíkir einstaklingar geta verið. Það sem hentar einum hentar öðrum ekki. Sú rannsóknarspurning sem ég lagði upp með hljóðaði svo: „Hver eru viðhorf og reynsla foreldra af almennum grunnskóla annars vegar og sérskóla hins vegar“. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að sérskólar, sérdeildir eða almennir grunnskólar henta ekki fyrir alla. Það sem hentar einum, hentar ekki öðrum þó um sé að ræða barn með sömu þroskahömlun. Það eru skiptar skoðanir á skóla án aðgreiningar. Sumir foreldrar telja að börn sem eiga rétt á sérskóla séu betur komin þar bæði náms og félagslega á meðan aðrir foreldrar vilja að börn sín umgangist börn í almennum grunnskóla og læri þeirra hegðun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Harpa Reynisdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22855
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22855

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Harpa Reynisdóttir 1990-. Hlustum á raddir foreldra : viðhorf, reynsla og skoðun foreldra fatlaðra barna á skólastarfi. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22855