Back to results

University of Iceland

Beiting dáleiðslu í parameðferð út frá hugmyndafræði Miltons H. Erickson. Starfendarannsókn

Abstract

dc:description.abstract

Víða um heim hefur áhugi aukist hjá meðferðaraðilum og almenningi á dáleiðslu í kjölfar rannsókna og umræðna sem sýna vaxandi árangur sem náðst hefur með klínískri dáleiðslu. Dáleiðsla hefur nýst vel sem aðferð í meðferð við lausn á ýmsum vandamálum, bæði sálrænum og sállíkamlegum. Markmiðið með þessari starfendarannsókn er að sýna hvernig rannsakandi upplifir að beita dáleiðslu í parameðferð út frá hugmyndafræði Miltons H. Erickson með pörum sem eiga í samskiptavanda. Einnig skoðaði ransakandi sína eigin upplifun af því að tileinka sér dáleiðslu sem nýja aðferð í parameðferð. Rannsóknin byggist á ígrundun og sjálfsrýni í rannsóknargögn út frá fræðiramma. Meðal annars var skoðað hvernig ómeðvitaður dáleiðandi dans fór á stað í samskiptum milli einstaklinganna í parasamböndunum, dans sem getur verið jákvæður eða neikvæður, allt eftir í hvaða samhengi dansinn myndast. Þrjú pör tóku þátt í rannsókninni og mætti hvert par í fimm meðferðarviðtöl þar sem dáleiðsla var hluti af meðferðinni. Öll viðtölin voru tekin upp á myndband, auk þess sem rannsakandinn hélt dagbók um rannsóknina. Meðferðin reyndist fyrst og fremst snúast um þrjú meginþemu, tengsl, dáleiðslu og ábyrgð. Í niðurstöðum rannsóknarinnar er gerð grein fyrir því lærdómsferli sem rannsakandi upplifði við að tileinka sér dáleiðsluaðferð Erickson. Niðurstöður rannsóknarinnar veita rannsakandanum og mögulega öðrum þeim sem kynna sér rannsóknina, mikilvæga innsýn í þessa aðferð sem þátt í parameðferð. Einnig kom fram í eftirfylgni í niðurstöðum rannsóknarinnar að öll pörin þrjú virtust hafa fengið lausn á samskiptavanda sínum og upplifðu dáleiðsluna sem jákvæðan og mikilvægan þátt í meðferðinni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Annetta A. Ingimundardóttir 1960-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22637
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22637

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Annetta A. Ingimundardóttir 1960-. Beiting dáleiðslu í parameðferð út frá hugmyndafræði Miltons H. Erickson. Starfendarannsókn. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22637