University of Iceland
„Eðlilegt er svo afstætt: Það er ekki eitthvað eitt eðlilegt.“ Reynsla kvenna af eðlilegri fæðingu: Eigindleg fyrirbærafræðileg rannsókn
Abstract
dc:description.abstractVerndun eðlilegra fæðinga hefur verið fyrirferðarmikið viðfangsefni innan ljósmóðurfræða síðustu áratugi. Þar er iðulega stillt upp mismunandi sýn læknisfræðinnar og ljósmóðurfræðinnar en sjónum sjaldnar beint að upplifun kvenna sjálfra af eðlilegum fæðingum. Í þessari rannsókn eru konur spurðar um þeirra eigin sýn. Rannsóknarspurningin sem lögð er til grundvallar er: Hver er reynsla kvenna af eðlilegum fæðingum? Aðferðarfræði rannsóknarinnar er eigindleg og byggist á viðtölum við tíu konur, fjölbyrjur og frumbyrjur, sem eiga samtals nítján fæðingar að baki. Viðtölin eru greind með fyrirbærafræðilegri aðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. Við heildargreiningu á fyrirbærinu eðlileg fæðing er unnið úr reynslu allra kvennanna og spunninn sameiginlegur vefur. Undirstöðuþemað við úrvinnslu á sögum kvennanna er Að gera fæðingarreynsluna að sinni eðlilegu fæðingu. Í þeirri ferð er fólgin óvissa, þar sem eðlilegt er að fá hjálp, en ef vel tekst til felast í reynslunni tækifæri til valdeflingar. Auk þess koma í ljós sjö yfirþemu sem áfram eru sameiginlega rakin í undirþemu. Öll hafa þau áhrif innbyrðis á heildarupplifun og lýsingu á fyrirbærinu eðlileg fæðing. Þessi þemu eru eftirfarandi: að hafa stjórn, stuðningur ljósmóður, sameiginlegt verkefni, öryggi og umhverfi, reynsla af sársauka, að taka á móti eigin barni, ekki eðlileg fæðing – þegar fæðingin er ekki lengur í eigin höndum. Í skilgreiningum fagfólks á eðlilegri fæðingu hafa andstæðurnar „inngrip“ og „ekki inngrip“ jafnan legið til grundvallar. Í hugum þeirra kvenna sem hér er rætt við er þessi tvískipting hins vegar ekki útgangspunktur eðlilegrar fæðingar. Allar konurnar líta svo á að þær eigi eðlilega fæðingu að baki – jafnvel náttúrulega fæðingu – þrátt fyrir fjölbreytt inngrip og ólíkar fæðingarsögur. Sýn þessara kvenna brýtur á vissan hátt upp hugtakið eðlileg fæðing eins og það hefur hingað til verið skilgreint. Sjónarhorn þeirra styður okkur ljósmæður í að leggja einstaklingsbundnari skilning á mörk hins eðlilega, treysta á innsæisþekkingu og mæta konum á þeirra eigin forsendum í fæðingu. Lykilorð: Eðlileg/náttúruleg fæðing, fæðingarreynsla kvenna, umönnun ljósmæðra, fyrirbærafræðileg nálgun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Steinunn H. Blöndal 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/21884
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/21884