University of Iceland
„Hver er þá málsvari þessa hóps?“ Staða ungmenna á Íslandi sem ekki eru í vinnu, námi eða starfsþjálfun
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar var að fá innsýn inn í reynsluheim fagaðila sem vinna með ungmennum sem ekki eru í vinnu, námi eða starfsþjálfun. Tekin voru viðtöl við níu fagaðila, fjóra náms- og starfsráðgjafa og fimm forstöðumenn, sem allir vinna í úrræðum sem ætluð eru hópi ungmenna sem eru í þessum sporum. Áhersla var lögð á að fá fram mat þeirra á hvað einkenni hópinn, hvað sé mikilvægt í vinnu með honum og hvaða hindrunum hópurinn stendur frammi fyrir. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að algengt er að ungmenni sem ekki eru í vinnu, námi eða starfsþjálfun séu með greiningar á borð við ADHD, lesblindu og einhverfu. Mörg koma brotin úr grunnskólanum, hafa verið í neyslu og þrífast illa í menntakerfinu. Mikilvægt þykir að ungmennin fái einstaklingsmiðaða þjónustu og að bæta þurfi við fleiri námsleiðum í íslenskt menntakerfi þar sem minna er um bóknámskröfur. Aukinheldur þótti mikilvægt að bæta við fleiri úrræðum fyrir ungmennin og þá einkum fyrir þau sem eru í fíkniefnaneyslu. Jafnframt töldu fagaðilarnir að stefnuleysis stjórnvalda gæti í málaflokknum, langtímasýn vanti og fjármagn skorti. Samningar við úrræðin eru oft til skamms tíma sem gerir það að verkum að erfitt er að móta og þróa starfið ásamt því að fá og halda í reynslumikið fagfólk.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Jóna Guðmundsdóttir 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/21624
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/21624