Abstract
dc:description.abstractAð fæða barn er einn stærsti lífsviðburður sem hver kona upplifir á ævi sinni og minning sem aldrei gleymist. Fæðingin hefur mikil áhrif á líkamlega og andlega heilsu konunnar og hvernig hún lítur á sjálfa sig. Margt getur haft áhrif á ánægju með fæðinguna, eins og að fá væntingum sínum fullnægt en væntingar móta reynslu og álit kvenna á fæðingunni. Væntingar kvenna til fæðinga eru mismunandi og margt sem hefur áhrif á þær. Tilgangur verkefnisins var að finna út hvaða væntingar konur hafa til fæðingar ásamt því að skoða hversu mikilvægar væntingar kvenna eru og hve mikil áhrif þær hafa á fæðingarreynsluna. Rannsóknin var eigindleg og stuðst var við rýnihópaaðferð þar sem tekin voru hálfstöðluð viðtöl við 11 konur í þremur hópum. Þátttakendum var safnað með svokölluðu snjóboltaúrtaki þar sem rannsóknin var auglýst á lokuðum spjallþráðum á netinu fyrir barnshafandi konur. Þær sem höfðu áhuga á að taka þátt í rannsókninni sendu okkur tölvupóst og fengu þær þá sent kynningarbréf um rannsóknina. Konurnar voru á aldrinum 23-36 ára og voru gengnar 16-32 vikur. Níu konur gengu með sitt fyrsta barn en tvær höfðu átt börn áður. Niðurstöðurnar voru að konur vilja hafa stjórn og vera þátttakendur í fæðingunni. Einnig bera þær mikið traust til maka og ljósmóður. Flestar voru sammála um að fara inn í fæðinguna með opnum hug og taka því sem kæmi. Þessar niðurstöður eru í samræmi við aðrar rannsóknir sem hafa verið gerðar um væntingar kvenna til fæðingar. Mikilvægt er fyrir ljósmæður sem annast konur í fæðingu að stuðla að því að væntingar kvenna séu uppfylltar eins og kostur er svo fæðingarreynslan verði góð og konur sáttar við þessa lífsreynslu. Lykilhugtök: barneignir, væntingar, stuðningur, ljósmóðir, ánægja og sjálfsöryggi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Una Kristín Guðmundsdóttir 1990-
- Ásdís Björk Guðmundsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/21619
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/21619